Næsti almyrkvi á Íslandi verður eftir 170 ár eða árið 2196. Skýjað í borginni. Sást við Látrabjarg
Hann hefur verið í umræðinni í marga mánuði en svo rann dagurinn upp í dag, 12. ágúst 2026.
Spennan var mikil um allt land; sérstaklega á suðvesturhorninu, vesturlandi og Vestfjörðum. Þrátt fyrir að sólin hafi leikið við höfuðborgarbúa þessa vikuna og spáð sé sólríkum dögum fram að helgi þá var því miður skýjað og rigning í borginni eftir hádegi.
En samt; það rökkvaði í um tvær mínútur meðan á almyrkvanum stóð og langflestir upplifðu stundina sem magnað náttúrufyrirbæri, þ.e. þegar tunglið skyggir á sólina á ákveðnum stöðum á jörðinni.
Deildarmyrkvi er það kallað þegar tunglið skyggir að hluta til á sólina.
Næsti almyrkvi á Íslandi verður eftir 170 ár eða árið 2026.

RÚV stóð vaktina í beinni útsendingu og þar fylgdust langflestir með sólmyrkvanum sást við Látrabjarg en kom um mínútu síðar á höfuðborgarsvæðið og því hægt að vera utandyra þegar það gerðist.
RÚV stóð vaktina í beinni útsendingu og þar fylgdust langflestir með sólmyrkvanum á skjánum þegar hann byrjaði við Látrabjarg en skall á um mínútu síðar á höfuðborgarsvæðinu.
Auðvelt var því að verða vitni að undrinu í beinni og bregða sér svo út fyrir til að veða vitni að því þegar snöggrökkvaði í borginni og kólnaði um leið. Það var eftirminnilegt.
Síðan var tunglið komið framhjá og þá tók - raunar furðufljótt - að birta á ný.

Í Hamrahverfinu í Grafarvogi 12. ágúst klukkan 17:48. Snöggrökkvaði og stóð það yfir í tæpar tvær mínútur.

Tveimur mínútum síðar, kl. 17:50 í Hamrahverfi. Almyrkvinn yfirstaðinn og tekið að birta - furðufljótt - aftur.
Hringurinn lokast. Almyrkvi við Látrabjarg og sér ekki til sólar.
Hér fer á eftir stutt yfirlit um helstu sólmyrkva sem sjást munu á Íslandi fram til ársins 2200. Skrá þessi er að mestu byggð á upplýsingum frá belgíska stjörnufræðingnum Jean Meeus, sem kunnur er fyrir útreikninga sína á myrkvum og hefur gefið út viðamikið rit um það efni.
1. Almyrkvi á sólu 12. ágúst 2026. Ferill skuggans, sem er tæplega 300 km á breidd, liggur yfir Ísland vestanvert, eins og fyrr segir. Í Reykjavík mun almyrkvinn standa í 1 mínútu og 10 sekúndur, en á Ísafirði í 1 mínútu og 36 sekúndur. Á Norðfirði sést deildarmyrkvi, og mun tungl hylja 95% af þvermáli sólar þaðan séð.
2. Hringmyrkvi á sólu 11. júní 2048. Hringmyrkvinn mun sjást frá Íslandi sunnanverðu. Í Reykjavík stendur hann yfir í 4,6 mínútur.
3. Hringmyrkvi á sólu 11. mars 2119. Ferill þessa myrkva liggur vestan við Ísland. Á landinu sjálfu sést deildarmyrkvi og mun um 96% af þvermáli sólar verða hulið frá vesturströndinni séð.
4. Almyrkvi á sólu 14. júní 2151. Ferill myrkvans liggur sunnan við Ísland. Hér á landi sést deildarmyrkvi; í Reykjavík mun tungl hylja 96% af þvermáli sólar.
5. Hringmyrkvi á sólu 12. apríl 2173. Ferillinn liggur austan við Ísland. Hérlendis sést deildarmyrkvi; í Reykjavík myrkvast 88% af þvermáli sólar.
6. Almyrkvi á sólu 26. júní 2196. Ferillinn gengur yfir Ísland norðvestanvert. Á Ísafirði stendur myrkvinn í 1 mínútu og 36 sekúndur. Í Reykjavík verður aðeins deildarmyrkvi, en tunglið mun skyggja á 99% af þvermáli sólar.
(Úr Almanaki Háskólans 1983, með lítilsháttar breytingum) - JGH

