Yfir 47 þúsund Íslendingar eiga hlutabréf í Kauphöllinni - um 12% þjóðarinnar
VIÐSKIPTI. HLUTHAFASPJALLIÐ. Einn af fylgifiskum útboðs ríkisins á hlutnum í Íslandsbanka er að einstaklingum sem eiga hlutabréf í skráðum fyrirtækjum í Kauphöllinni, Nasdaq Iceland, fjölgaði um yfir 60% og eru núna orðnir 47.300 talsins en voru um 29 þúsund fyrir útboðið. 12% þjóðarinnar eiga hlutabréf en í Svíþjóð er þetta hlutfall 25%.
Þetta kemur fram í nýjasta hlaðvarpsþætti okkar Sigurðar Más Jónssonar, Hluthafaspjallinu á Brotkast.is þar sem gestur okkar er Magnús Harðarson , forstjóri Nasdaq Iceland. Sjá hér.
Ljóst er að margir einstaklingar tóku þátt í hlutabréfaviðskiptum í fyrsta sinn við útboð Íslandsbanka en alls tóku 31 þúsund manns þátt í útboðinu og fjölgaði hlutabréfaeigendum úr röðum einstaklinga um 18 þúsund í útboðinu.
Við Íslendingar eigum þó langt í land með því að ná Svíum þar sem um fjórðungur landsmanna eiga hlutabréf.
Fyrir útboð Íslandsbanka var þetta hlutfall hér á landi um 8% en fer upp í að verða 12%, að sögn Magnúsar.
Af þessu má ráða að sala Íslandsbanka hefur haft mikil áhrif á þróun mála í Kauphöll Íslands. - JGH

Einstaklingum á hlutabréfamarkaðnum fjölgaði um 18 þúsund í útboði Íslandsbanka og fóru í 47 þúsund talsins. Núna eiga 12% Íslendinga hlutabréf en í Svíþjóð er þetta hlutfall 25%.