Rafael Máni Þrastarson í Fjölni valinn í U-19 landsliðið

23. maí 2025
RAFAEL Í LANDSLIÐIÐ. GLÆSILEGT.
Þórhallur Siggeirsson, landsliðsþjálfari U-19 liðs karla í knattspyrnu, hefur valið Rafael Mána Þrastarson í leikmannahóp landsliðsins fyrir æfingaleik gegn Englandi í byrjun júní.

„Vel gert Rafael. Við erum stolt af þér,“ segir á FB-síðu Fjölnis.

Svo sannarlega hægt að taka undir þessi orð - gangi þér Rafael og öðrum leikmönnum Fjölnis allt í haginn í sumar. - JGH