Vorjafndægur í dag í frekar hryssingslegu veðri - staðan er núna tólf-tólf

20. mars 2026

Það er vorjafndægur í dag og því má segja að staðan sé tólf klukkustundir í björtu gegn 12 rökkvuðum. Sólarupprás var kl. 7:28 í morgun og sólin sest kl. 19:43 í kvöld. Vorjafndægur er nákvæmlega kl. 14:43 í dag.


Birtan hefur snaraukist frá áramótum. 1. janúar var sólarupprás kl. 11:19 og sólsetur kl. 15:43. Í morgun var sólarupprás um fjórum klukkustundum fyrr, eða kl. 7:28.


Samkvæmt Íslenska almanakinu er jafndægur sú stund þegar sól er beint yfir miðbaug jarðar . Þetta gerist tvisvar á ári á vorjafndægri á tímabilinu 19.-21. mars og á haustjafndægri 21.-24. september.


Um þetta leyti er dagur og nótt álíka löng hvar sem er á jörðinni og af því er nafnið dregið. Breytileiki dagsetninganna stafar aðallega af hlaupárum.


ÁRSTÍÐASKIPTI


„Í mörgum fornum menningarsamfélögum var upphafsdagur ársins oft ýmist miðaður við vor- eða haustjafndægur sem og vetrar– eða sumarsólstöður enda marka þessi tímamót hvert fyrir sig ákveðin árstíðaskipti náttúrunnar svo eðlilegt var að miða við eitthvert þeirra.


Dæmi um notkun jafndægra sem árstíðaskipta hér á landi þá segir um vorið í Skáldskaparmálum Snorra-Eddu að það sé frá jafndægri að vori til Fardaga en þá taki við sumar til jafndægris á hausti.


Vorið nær því samkvæmt því frá 19. til 21 mars og fram að Fardögum sem voru á fimmtudegi í 7. viku sumars eða á bilinu 31. maí til 6. júní en þá hefst sumar sem endar á jafndægrum að hausti um 21.-24. september,“ segir í Íslenska almanakinu.


HÆNUFETIÐ SEM TEKUR Á STÖKK Í FEBRÚAR

1.janúar:    Sólarupprás  kl. 11:19 - sólsetur 15:43.

1.febrúar:  Sólarupprás   kl. 10:08 - sólsetur 17:15.

1.mars:      Sólarupprás  kl.   8:05 - sólsetur 18:46

20. mars:   Sólarupprás  kl.   7:28 - sólsetur 19:43.


Um þetta leyti er dagur og nótt álíka löng hvar sem er á jörðinni og af því er nafnið jafndægur dregið.

Mynd tekin fyrir rúmri viku, 11. mars kl. 19:52.

Ágæist skima. Annað sjónarhorn fyrir rúmri viku, 11. mars, kl. 19:52. Horft yfir Gufuneshverfið í átt að Akranesi og Akrafjalli.

Mynd tekin út um stofugluggann hjá mér í morgun kl. 8:05 þegar mikið kóf gekk yfir. Það er gul viðvörun yfir öllu landinu í dag.

Mánudagurinn 16. mars kl. 9:05 að morgni. Eitthvað annað en kl. 9:05 í byrjun janúar.

Fjallið með þúsund andlitin.