Hér má sjá stutta klippu þar sem Bolli Héðinsson varar við kaupaukum

18. mars 2026

Bolli Héðinsson, formaður Samtaka sparifjáreigenda og formaður bankaráðs Seðlabankans, var gestur okkar Sigurðar Más Jónssonar í hlaðvarpi okkar Hluthafaspjalli ritstjóranna á dögunum.


Við fengum hann í þáttinn vegna athyglisverðrar greinar sem hann skrifaði nýútkomið rit mitt, Fjármál og ávöxtun, þar sem hann varar við kaupaaukakerfum til lykilstjórnenda í fjármálafyrirtækjum sem og í skráðum fyrirtækjum.


Hann beinir orðum sínum sérstaklega til lífeyrissjóðanna sem eiga á milli 40 og 50% í mörgum skráðum fyrirtækjum á Íslandi og eru áberandi stórir í bönkunum.


Sjá má klippuna með Bolla hér:


Og hér má sjá allan þáttinn hjá okkur Sigurði Má en hann er jafnan að finna á efnisveitunni Brotkast.is - JGH

Bolli Héðinsson, formaður Samtaka sparifjáreigenda og formaður bankaráðs Seðlabankans, varar við kaupaukum til lykilstjórnenda og biður lífeyrissjóðina að hafa varann á sér í þeim efnum. Hér má sjá stutta klippu með Bolla.

Grein Bolla í ritinu Fjármál og ávöxtun þar sem hann varar við kaupaukum í fjármálageiranum og beinir spjótum sínum til lífeyrissjóðanna og biður þá að hafa varann á í þeim efnum. Hér má sjá allt blaðið.