Óvænt útspil! Meirihlutinn leggur til að bílastæðum verði fjölgað við nýbyggingar. Vel í lagt, hálft stæði á íbúð
21. mars 2026
Frétt Vísis sl. fimmtudag vakti að vonum athygli. Meirihlutinn í borgarstjórn - sem hefur svo sannarlega hvatt til bíllauss lífsstíls og ekki sett bílastæði við nýbyggingar í forgang - kom með óvænt útspil í liðinni viku. Jú, að fjölga bílastæðum við nýbyggingar. Og það er vel í lagt hjá meirihlutanum í tillögunni - hálft stæði á íbúð! Takk fyrir.
Í frétt visir.is
sagði: Bílastæðum við nýbyggingar í Reykjavík mun fjölga verði tillaga sem liggur fyrir umhverfis- og skipulagsráði borgarinnar samþykkt. Tillagan snýr að því að rýmka viðmið fyrir íbúðahúsnæði um allt að 0,5 bílastæði á íbúð og var til umræðu á fundi ráðsins í gær.“
Og svo kom þetta í fréttinni: „Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort tillagan fái frekari framgang en verður væntanlega til frekari umræðu innan umhverfis- og skipulagsráðs á næstunni.
Svæðin sem þessi breytingartillaga nær til eru fyrir svæði 1 og 2 þegar kemur að fjölda bílastæða á íbúð. Svæði eitt nær yfir miðkjarna Reykjavíkur og svæði 2 nær yfir öll önnur svæði innan þéttbýlismarka sem ekki eru innan svæðis 1.“
Meðfylgjandi mynd fylgdi frétt Vísis og er tekin af Vilhelm Gunnarssyni ljósmynara. - JGH

Kosningar í nánd og skyndilega hefur meirihlutinn fengið áhuga á að fjölga bílastæðum við nýbyggingar en fjöldi óseldra íbúða hefur hlaðist upp; meðal annars vegna fárra bílastæða við nýbyggingar. Og það er vel í lagt í tillögunni; hálft stæði á íbúð.

