„Þeir komu og tæmdu í morgun“. Sorphirða dýrust í Reykjavík, 85 þús. kr. á heimili á ári
Oft er það svo að manni finnst að of langur tími líði á milli þess sem losað er úr tunnunum hjá manni. Þannig var það í þetta skiptið; plast- og pappatunnan var orðin sneisafull fyrir um tíu dögum án þess að neyslan væri eitthvað meiri en venjulega. En „þeir komu og tæmdu í morgun“ eins og það er jafnan orðað á heimilinu.
Það rifjaðist upp að Viðskiptaráð var með úttekt á dögunum um sorphirðu í stærstu sveitarfélögum landsins. Niðurstaðan var sú að hún er dýrust í Reykjavík, eða 85 þús. kr. á ári, en lægst í Reykjanesbæ, eða 62 þús. kr. á ári. (Sjá frétt Viðskiptaráðs hér.)

Dýrast í Reykjavík en ódýrast í Reykjanesbæ.
Fram kemur hjá Viðskiptaráði: „Í sorphirðu er virk samkeppni í öllum stærstu sveitarfélögum landsins að Reykjavíkurborg undanskilinni. Það er vegna þess að öll sveitarfélög nema Reykjavíkurborg bjóða út sorphirðu. Raunar er Reykjavíkurborg eitt af aðeins sjö sveitarfélögum sem útvista ekki þjónustunni. Hin sveitarfélögin eru Ásahreppur, Rangárþing ytra og Rangárþing Eystra, Strandabyggð, Kaldrananeshreppur og Árneshreppur.

Athyglisvert. Sorphirða vigtar núna meira í vísitölunni. Sorphirða er sá kostnaðarliður í rekstri heimila sem hefur hækkað langmest í vísitölu neysluverðs, eða tvöfaldast.

Þetta er sömuleiðis athyglisvert graf frá Viðskiptaráði. Reykvíkingar ósáttastir við tæmingu sorps hjá sér.

„Þeir komu og tæmdu í morgun.“


