Töfrar og tjörulykt í Hamrahverfinu. Hringur sem er opinn í „báða enda“ hvernig sem það er hægt :)
Tjörulyktin var í lofti í Hamrahverfinu í dag þegar þrjár götur voru malbikaðar; Dverghamrar, Hesthamrar og Vegghamrar.
Lokinhamrar eru hringur sem tengist öllum götum í hverfinu og hefur smá „útúrsnúning“ þar sem hann tengist við Gullinbrú. Það má því segja að þetta sé óvenjulegur hringur sem sé „opinn í báða enda“ - hvernig sem það sé annars hægt í formúlu hins hringlaga forms.
En þegar kemur að Lokinhömrum virðist það hægt. :)
Ökumenn skiptust á að taka norður- eða suðurleiðina eftir stöðu framkvæmda í dag og í rauninni urðu litlar umferðartafir.
Einhverjir urðu að bakka og snúa við þegar að bikunarvélunum kom en allir komust leiðar sinnar og inn og út úr hverfinu.
Alvöru „aksjón“ og Dverghamrar, Hesthamrar og Vegghamrar sléttstraujaðir eftir herlegheitin. - JGH

Malbikað við Vegghamra síðdegis og þar með var norðurleið hringsins út úr hverfinu lokuð á meðan. Hér fór enginn framhjá þessum tilkomumiklu tækjum.

Alvöru „aksjón“, tjörulykt í lofti og norðurleiðin út úr hringnum lokuð.


