Græna gímaldið og „dótakassi borgarstjóra“. Deiliskipulaginu breytt 12 sinnum á 9 árum
Morgunblaðið hefur að undanförnu flutt mjög svo athyglisverðar fréttir úr skýrslu Innri endurskoðunar Reykjavíkurborgar af Græna gímaldinu sem stendur á lóðinni við Álfabakka 2a. Fram kemur að deiliskipulaginu var breytt tólf sinnum á níu árum og að deiliskipulagið hafi m.a. verið auglýst í Fréttablaðinu árið 2022 undir heitinu „Bryggjuhverfi dælustöð“. Rekin var sérstök skrifstofa, Athafnaborgin Reykjavík, sem heyrði beint undir borgarstjóra (Dag B. Eggertsson) og gekk undir nafninu „dótakassi borgarstjóra“.
Þessi skrifstofa stýrði ferðinni og virðist hafa klæðskerasniðið lóðina fyrir þá starfsemi sem þar voru áformuð með fyrrnefndum tólf breytingum á deiliskipulaginu sem aftur urðu til þess að skilmálar um útlit og umfang mannvirkja á lóðinni urðu smám saman óljósari og segir í skýrslunni „að slíkur fjöldi breytinga geti torveldað yfirferð, samanburð og túlkun á upprunalegu skipulagi.“
Hér má sjá frétt Morgunblaðsins sem skrifuð er af Óskari Bergssyni blaðamanni.
MARKMIÐIÐ AÐ SKAPA TEKJUR MEÐ SÖLU LÓÐA
Hlutverk Athafnaborgarinnar Reykjavík var að skapa tekjur fyrir borgina og hluti af þeirri tekjuöflun var að selja lóðir. Skrifstofan var að sjálfsögðu ekki nefnd „dótakassi borgarstjórans“ en gekk manna á meðal undir því nafni og var til húsa í Ráðhúsinu og heyrði beint undir borgarstjóra.
Í fréttinni kemur fram að eftir að
Græna gímaldið tók á sig núverandi mynd, þ.e. vöruhúsið við Álfabakka 2a hafði verið reist, og í ljós kom hvað í raun hafði gerst þarna á lóðinni var skrifstofan lögð niður og „dótakassanum“ lokað.

Vöruhúsið við Álfabakka 2a er löngu orðið þekkt sem Græna gímaldið og gengur ekki undir öðru heiti.
BIRTINGU SKÝRSLUNNAR FRESTAÐ FYRIR KOSNINGAR
Ákveðið var að fresta birtingu skýrslunnar fyrir kosningar en hún var unnin af Innri endurskoðun Reykjavíkurborgar (IER) um skipulagsferli vöruhússins við Álfabakka 2a en það er löngu orðið þekkt undir heitinu Græna gímaldið.
Skýrslan leiðir í ljós „að ýmsir þættir hefðu mátt vera markvissari, skýrari og betur skjalfestir. Sérstaklega hefði mátt leggja meira upp úr skýrari skilmálum og vandaðri vinnubrögðum.“
Þá segir að „á auglýsingatímanum sumarið 2022 reyndist auglýsing í Fréttablaðinu gölluð þar sem hún var auglýst undir tillögum að breyttu deiliskipulagi og hverfisskipulagi í Reykjavík undir millifyrirsögninni „Bryggjuhverfi dælustöð“.
Altént er niðustaðan þessi; byggingafélagið sem keypti lóðina réði ferðinni.
-
JGH

Þessi bygging er ekki að fara neitt. Svo er að sjá hvaða lausnir íbúar í nærliggjandi íbúðum fá á sínum málum.

Fréttin um Græna gímaldið og „dótakassa“ borgarstjórans var á forsíðu Morgunblaðsins sl. miðvikudag, 20. maí.

Óskar Bergsson, blaðamaður á Morgunblaðinu, hefur haldið vel utan um þetta mál.

Bryggjuhverfið blandaðist óvænt inn í málið þegar deiliskipulag Álfabakka 2a í Breiðholti var auglýst undir fyrirsögninni „Bryggjuhverfi dælustöð“.


