Bikað af krafti! Eins og allt lið Höfða væri í Hamrahverfinu að malbika
Það er heldur betur búið að bika í Hamrahverfinu í dag og svo mikill gangur í þessu að það var eins og allt lið Malbikunarstöðvarinnar Höfða væri mætt í Hamrahverfið í Grafarvogi með sín tæki og tól. Vel gert og kraftur í þessu.
Við sögðum frá því í gær að íbúar hefðu verið beðnir um að leggja ekki bílum í Dverghamra og Hesthamra vegna fyrirhugaðra framkvæmda.
Íbúar urðu svo sannarlega við þeirri ósk og fyrir vikið gekk verkið vel. Það er áberandi meiri hraði í þessu en á árum áður. Tæknin alltaf að þróast með öflugri og stórvirkari tækjum.
Malbikunarstöðin Höfði er í eigu Reykjavíkurborgar og Aflvaka.
Hlutföllin í malbiki eru 94% steinefni og 6% bik, en bikið bindur steinefniskornin saman, gefur malbikinu sveigjanleika og ver það gegn vatni.
Eða svo segir Vísindavefur Háskólans um malbik. Og verðum við ekki að trúa honum?
- JGH

Bikað af krafti í Dverghömrum.

Hamrahverfið er lítið og rólegt hverfi í Grafarvogi sem enginn sækir nema eiga þangað erindi. En stórskotalið Malbikunarstöðvarinnar Höfða var mætt þangað í dag - og það fór ekki framhjá neinum.

Þeir voru af stærri gerðinni sem settu svip sinn á Hamrahverfið í dag.


