Ívar Ingimundarson spilaði nokkra leiki með Reading á móti Ronaldo hjá United
Hinn kunni knattspyrnumaður, Ívar Ingimarsson, sem fluttur er alfarið í Grafarvoginn, hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari meistaraflokks Fjölnis í knattspyrnu. Hann var atvinnumaður í knattspyrnu á Englandi frá 1999 til 2012 og spilaði með Brentford, Wolverhampton Wonderes, (Úlfunum), Brighton, Reading og Ipswish Town. Allt þekkt lið í boltanum. Lengst af spilaði hann með Reading eða frá 2003 til 2011 eða áður en hann lauk ferlinum með Ipswish.
Ívar er hér í stuttu spjalli við okkur á Grafarvogi.net og við byrjum vissulega á að spyrja hann um leikina sem hann spilaði með Reading gegn Man. United á sínum tíma þegar Christiano Ronaldo lék með liðinu.
„Ég var nú fyrst og fremst mjög feginn að vera ekki bakvörður í þeim leikjum sem ég spilaði gegn Roaldo þar sem hann var á kantinum,“ segir Ívar sem spilaði bæði sem miðvörður og bakvörður.
„Ég man þó sérstaklega eftir því í einum leiknum sem við spiluðum gegn Man Utd. var mér falið að hafa sérstakar gætur á Ronaldo og dekka hann í hornspyrnum. Það gekk nú ekkert sérstaklega vel, því hann var næstum búinn að skora tvisvar í byrjun þess leiks. Þá var ákveðið að taka mig af Ronaldo og láta mig dekka Rio Ferdinand í staðinn. Það var svona svolítið eins og að fara úr öskunni í eldinn. En þetta gekk samt allt ágætlega á endanum og þetta voru allt hörkuleikir hjá Reading á móti Ronaldo og Man Utd.“

Ívar Ingimundarson var ráðinn aðstoðarþjálfari meistaraflokks Fjölnis í knattspyrnu á dögunum. Hann var enginn „aukvisi“ í knattspyrnu eins og Bjarni heitinn Fel. hefði orðað það.
Ívar er Austfirðingur, frá Stöðvarfirði, fæddur 20. ágúst 1977, og því 49 ára að aldri. Þótt hann sé alfluttur í Grafarvoginn og hafi búið hér í rétt rúm tvö ár þá vill svo ánægjulega til að hann bjó í Grafarvogi á árunum 1996-1999, eða áður en hann fluttist út til Englands í atvinnumennskuna.
Ívar spilaði 30-leiki með A-landsliði Íslendinga á árunum 1998 til 2007 og 41 landsleik með yngri landsliðunum.
Eftirminnilegasti landsleikurinn?
„Það er í raun enginn einn landsleikur sem stendur sérstaklega upp úr hjá mér. Því miður var landsliðið ekki að gera neina stórkostlega hluti á þeim árum sem ég lék með því. Við áttum þó ágætis úrslit inn á milli, meðal annars 1–1 jafntefli gegn Spáni árið 2007 og 3–0 útisigur gegn Norður-Írlandi árið 2006,“ segir Ívar.

Stöðfirðingurinn reynir að stöðva sjöuna hjá United; Ronaldo.
Þegar Ívar fluttist heim til Íslands eftir glæsilegan feril sem atvinnumaður í enska boltanum hellti hann sér út í ferðaþjónustu á Austurlandi og lagði sig þar fram eins og í boltanum. Árið 2021 hlut hann hvatningarverðlaun ferðaþjónustunnar á Austurlandi en verðlaunin sem féllu í hans hlut nefnast Kletturinn. Einhver kynni að segja að kletturinn hafi fengið Klettinn.
Við afhendingu verðlaunanna var þeim lýst svo: „Viðurkenning þessi er veitt þeim aðilum sem um árabil hafa staðið í framlínu ferðaþjónustu á Austurlandi og með ósérhlífni og eljusemi stuðlað að framgangi og vexti atvinnugreinarinnar. Þeir eru bjargið sem ferðaþjónustan byggir á og eru öðrum fyrirmynd í að klífa örðuga hjalla til að ná handfestu á framtíðinni.“
En fyrst hann er fluttur í Grafarvoginn - er þá ferðaþjónustan fyrir austan að baki? „Nei, ég er ekki hættur öllum afskiptum af ferðaþjónustunni fyrir austan, þó ég sé ekki lengur í daglegum rekstri þar.“

Frá Stöðvarfirði. Austfirðir hafa svo sannarlega sinn sjarma. Ívar er enn tengdur ferðaþjónustunni fyrir austan þótt hann sé þar ekki lengur í daglegum rekstri.
Ívar segist hlakka til hins nýja verkefnis sem aðstoðarþjálfari meistaraflokksins Fjölnis í knattspyrnu og hann mun svo sannarlega geta miðlað góðum ráðum til leikmanna.
„Ég hlakka mikið til að takast á við þetta verkefni hjá Fjölni. Ég tel að það séu mikil tækifæri fyrir félagið. Þetta er ekki fyrsta þjálfaraverkefnið mitt, því ég hef undanfarin ár þjálfað 2. flokk karla hjá HK og þar á undan meistaraflokk kvenna hjá KR. Knattspyrnan hefur alltaf verið stór hluti af mínu lífi og mér finnst mjög gaman að þjálfa. Ég lít á þetta sem mjög spennandi verkefni og hlakka til að vinna með Fjölni,“ segir Ívar Ingimarsson, Stöðfirðingur og nú Grafarvogsbúi.
Reynslubolti í botanum er mættur til leiks í hverfið okkar góða. - JGH

Ívar Ingimundarson kynntur til leiks hjá Fjölni. Frá vinstri: Gunnar Már Guðmundsson, þjálfari, Birgir Birgisson, framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar, og Ívar Ingimundarson, aðstoðarþjálfari.

