Skemmtilegi handboltafrasinn frá ÓL í Kína 2008 notaður í skákinni: Gott silfur - gulli betra

20. október 2026

Helgi Árnason, skákfrömuður og formaður Skákdeildar Fjölnis, sótti í hinn góða frasa íslenska landsliðsins í handbolta á Ólympíuleikunum í Kína frá árinu 2008 þegar hann sagði skemmtilega frá því að skáksveit Fjölnis hefði lent í 2. sæti á fjölmennu Íslandsmóti barna-og unglingasveita sem fram fór í íþróttahúsinu Miðgarði í Garðarbæ um helgina: „Gott silfur - gulli betra,“ skrifaði Helgi á sinn jákvæða og uppbyggilega hátt.


Íslenska landsliðið í handbolta varð í öðru sæti á ÓL í Peking og þá varð þessi frasi til og rætt um silfurliðið og silfurdrengina sem raunverulega gulldrengi. Gerð var heimildarmynd um árangur liðsins og var hún frumsýnd 2009 og hét þá einmitt: Gott silfur - gulli betra.


En hvað um það, börnin og unglingarnir í Fjölni eru snillingar í skákinni og lentu öðru sæti á mótinu sl. sunnudag; tóku gott og gljáfægt silfrið!

A-sveit Fjölnis sem ásamt A-sveit TR var með yfirburði í „Opnum flokki“.

Rúmlega 150 þátttakendur tefldu á mótinu; alls 36 skáksveitir, þar af 7 frá Skákdeild Fjölnis. Aðeins KR-ingar voru fjölmennari. A-sveit TR varð Íslandsmeistari eftir æsispennandi keppni við A-sveit Fjölnis.


Þessar skáksveitir höfðu nokkra yfirburði í „Opnum flokki“, voru jafnar fyrir síðustu umferð og áttust við í lokin. Viðureignin endaði 3-1 fyrir TR.

A-sveit Fjölnis í B-flokki Íslandsmótsins.

Einnig var keppt í Íslandsmóti einstaklinga og þar unnu Fjölniskrakkarnir mörg silfurverðlaun.


„Fjölniskrakkarnir 30 sem tefldu fyrir Fjölni voru á aldrinum 7 - 15 ára og stóðu sig öll ljómandi vel,“ segir Helgi í færslu sinni af mótinu.


Skákin er algerlega til fyrirmyndar í Grafarvoginum. - JGH

Tyler Khang var yngsti þátttakandinn í skáksveitum Fjölnis. Ungur og efnilegur leikmaður.

Stelpurnar í Fjölni vekja jafnan athygli fyrir glæsta frammistöðu og fjölda leikmanna.