Ásta Þorleifsdóttir jarðfræðingur birtir einstaka mynd í tilefni fyrsta vetrardags
Grafarvogsbúinn og jarðfræðingurinn, Ásta Þorleifsdóttir, birtir framúrskarandi mynd á FB-síðu sinni í dag í tilefni fyrsta vetrardags.
Yfirskrift myndarinnar er einföld og góð: „Fyrsti vetrardagur heilsar með frosti.“
Ásta hefur látið umhverfis- og skipulagsmál okkar Grafarvogsbúa sig mjög varða meðal annars um áhrif Sundabrautar á Blikastaðarkló og Leiruvog.
Þá taka þær sig svo sannarlega vel út rósirnar sem hún ræktar og birtir annað slagið myndir af á FB-síðu sinni en hún er félagi í Róskaklúbbi Garðyrkjufélags Íslands.
Meðfylgjandi myndir eru fengnar af FB-síðu hennar. - JGH

Mögnuð mynd Ástu í dag undir yfirskriftinni: „Fyrsti vetrardagur heilsar með frosti.“

Ásta er þekktur rósaræktandi og félagi í Rósaklúbbi Garðyrkjufélags Íslands.

Grafarvogsbúinn og jarðfræðingurinn og rósaræktandinn Ásta Þorleifsdóttir.

