Irving Thomas, stofnandi Elite Camp: Snýst um að hjálpa ungu fólki að ná draumum sínum
Hann er sérlega viðkunnanlegur maður með góða nærveru. Irving Thomas, stofnandi Elite Camp Foundation, er rólegur og yfirvegaður.
Það eru engir stjörnustælar í honum þótt hann sé kunnur körfuboltamaður sem spilaði mest í Evrópu á ferli sínum; á Ítalíu í fjögur ár, í Frakklandi og á Spáni. Heimsmaður í boltanum.
Hann var í liði LA Lakers tímabilið 1990 til 1991, á nýliðaárinu sínu, og lék þar sem framherji. Hann er í nánum tengslum við vini sína og allar helstu stjörnur Lakers í gegnum tíðina og þeir hafa lagt honum lið með Elite Camp-æfingabúðirnar.
Hann hefur verið „njósnari“ hjá Lakers frá árinu 2001 og segir að félagið leitist við að koma auga á efnilega og hæfileikaríka leikmenn um allan heim. „Það eru margir kallaðir en þótt við náum að krækja einungis í einn á ári þá getur það skipt sköpum.“
„Þetta er í annað sinn sem ég kem til Íslands, ég mætti með Elite Camp í Garðabæinn í fyrra,“ segir hann um komu sína til Íslands þetta árið.
Hann býr í Miami í Flórída ásamt fjölskyldu sinni. Hann er fæddur í Brooklyn í New York og á rætur að rekja til Jamaica. Það var einmitt í Miami sem hugmyndin kviknaði.

Irving Thomas, stofnandi Elite Camp, er hægur og yfirvegaður maður með mjög svo góða nærveru. Engir stjörnustælar á þeim bænum.
HVERNIG ELITE CAMP VARÐ TIL!
„Hugmynd mín með því að stofna Elite Basketball Academy fyrir um fimmtán árum var sú að gefa aftur til samfélagsins og aðstoða börn og unglinga við að elta drauma sína í körfubolta með því að þeir sem hafa náð langt í íþróttinni aðstoði og leiðbeini þeim. Elite Camp er að því leitinu til gott stuðningskerfi fyrir börnin og gefur þeim færi á að hlusta og læra af reynslu annarra.“
Thomas segir ennfremur að Elite Camp sé meira en körfubolti, æfingar og tækni. Fræðsla og ráðleggingar um heilsu, líkamsrækt og næringu - sem og félagsleg ábyrgð og samfélagsvitund og að setja sér markmið séu mikilvægir þættir hjá þeim sem vilja ná langt og sjá drauma sína rætast.
En hvernig er það fyrir Miami-búann Irving Thomas að koma í blásturinn og svalann á Íslandi?
„Já, það er svona örlítill munur,“ segir hann hlæjandi. „En það er búið að vera frábært að vera hér. Krakkarnir eru magnaðir og þeir bræður, Björn Helgi og Jón Haukur, eru sérlega gestrisnir og skemmtilegir.“
- Ég heyrði að þú hefðir fengið gott lambakjöt í partýinu hjá Eyþór Ívari Jónssyni, stjórnarmanni í Fjölni?
„Já, svo sannarlega. Ég hafði smakkað lambið áður og hrifist af því. En ég held að það segi allt sem segja þarf að ég borðaði mest allra af lambakjötinu hjá Eyþóri. Frábær matur,“ segir Irving Thomas að lokum í þessu stutta spjalli við hann.
- JGH

Irving Thomas með Birni Helga Baldvinssyni og stórfélaga sínum Billy Thompson (lengst til vinstri) sem á tvo NBA-titla að baki með Lakers og er ekki aðeins að gefa af sér í körfunni heldur er hann vinsæll prestur.

„Krakkarnir í æfingabúðunum hér í Egilshöll eru magnaðir,“ segir Irving Thomas.

NBA-stjarnan Robert Horry í Egilshöllinni. Sjöfaldur NBA-meistari. Þrír með LA Lakers, tveir með Houston Rockets og tveir með San Antonio Spurs. Boston Celtic-leikmaðurinn, Bill Russel, á metið; 11 titlar.

„Hugmynd mín með því að stofna Elite Basketball Academy fyrir um fimmtán árum var sú að gefa aftur til samfélagsins og aðstoða börn og unglinga við að elta drauma sína í körfubolta.“

Eyþór Ívar Jónsson, stjórnarmaður í Fjölni, (í ljósblárri skyrtu fyrir miðri mynd) hélt „risaveislu“ fyrir NBA-stjörnurnar og fylgdarlið í garðinum hjá sér í Grafarvoginum í tilefni Elite Camp í Grafarvogi og bauð upp á lambakjöt. „Ég mun víst hafa borðað mest allra í veislunni. Frábær matur,“ segir Irving Thomas hlæjandi.

