Frábær pistill Eyþórs Ívars um það sem stjörnurnar sögðu á fundinum í Sambíóinu: Það er ekki hægt að sjálfvirkjavæða traust, virðingu og liðsheild
Eyþór Ívar Jónsson, doktor í hagfræði, forseti Akademias-stjórnunarskólans og stjórnarmaður í Fjölni, er sá sem fékk þá bræður Björn Helga og Jón Hauk Baldvinssyni til að koma með Elite Camp í Grafarvoginn í ár.
Hann var á fundinum í Sambíóunum í gær þar sem Robert Horry, sjöfaldur NBA-meistari, kom fram ásamt þeim Billy Thompson og Stacy Lovelace.
Hann birtir pistil sinn á Facebook-síðu sinni með þessum orðum:
„Á tímum þar sem við tölum stöðugt um tækni, sjálfvirknivæðingu, gervigreind og fljótlegar lausnir (hacks), var hressandi að hlusta á þau Robert Horry, Billy Thompson og Stacy Lovelace ræða um það sem skapaði raunverulegan árangur á þeirra ferli.
Engin þeirra talaði um töfrabrögð eða auðveldar leiðir. Þau töluðu um: - Gæði samskipta og traust: Hvernig réttu tengslin við félagana og þjálfarann skópu meistaralið.
- Virðingu fyrir teyminu: Að enginn einn leikmaður sé stærri en kerfið.
- Aga og metnað: Að mæta á hverjum degi og æfa hlutina aftur og aftur.
Í atvinnulífinu í dag er auðvelt að falla í þá gildru að halda að nýjasta tæknin leysi öll okkar vandamál. En eins og þessi hópur minnti okkur á: Það er ekki hægt að sjálfvirkja virðingu, traust eða liðsheild.
Tæknin getur aukið framleiðslugetu okkar — en það eru samskiptin, menningin og mætingin sem skera úr um hvort við verðum meðaljón eða meistarar.
Hvað þarf að gerast á þínum heimavelli?“ - JGH

Billy Thompson, Stacy Lovelace og Robert Horry í einum af sal Sambíóanna í gær þar sem þau ræddu um það sem skapaði raunverulegan árangur á þeirra ferli. (Mynd: Eyþór Ívar Jónsson).

