Björn Helgi með NBA-stjörnunum, Billy Thompson og Irving Thomas í Grafarvogi

8. ágúst 2026

Þeir voru að sjálfsögðu brosmildir kapparnir á þessari mynd. Hér er Björn Helgi Baldvinsson, Elite Camp á Íslandi, með NBA-stjörnunum Billy Thompson og Irving Thomas í heimili NBA á Íslandi þessa dagana, í Egilshöll í Grafarvogi.


Irving Thomas stofnaði Elite Camp-æfingabúðirnar á sínum tíma til að styðja við og hjálpa ungu körfuboltafólki við að bæta árangur sinn og fékk til liðs við sig gamlar goðsagnir, gamlar NBA-stjörnur, til að mæta og leiðbeina krökkunum og vera fyrirmyndir þeirra í íþróttinni. Elite Camp-ævingabúðirnar á Íslandi eru fyrir aldurshópinn 7 til 17 ára.


Billy Thompson varð tvisvar NBA-meistari með LA Lakers, árin 1987 og 1988 og spilaði þar með köppum eins og Kareem Abdul-Jabbar og Magic Johnson.


Irving Thomas átti langan feril í körfuboltanum, lék mikið í Evrópu og svo með LA Lakers tímabilið 1990 til 1991. Hann hefur verið yfirnjósnari hjá LA Lakers frá árinu 2001.


Hér má sjá aðeins meira um þá félaga, Billy Thompson og Irving Thomas.

Bræðurnir Jón Haukur og Björn Helgi Baldvinssynir, umboðsmenn Elite Camp á Íslandi, kampakátir í Egilshöllinni.

Bræðurnir Björn Helgi og Jón Haukur Baldvinssynir eru með Elite Camp á Íslandi og standa fyrir þessum æfingabúðum í Egilshöll í samtarfi við Elite Camp Foundation í Bandaríkjunum sem Irving Thomas heldur utan um og stofnaði.


Björn Helgi er kvikmyndagerðarmaður og bjó í 25 ár í Los Angels og er mikil Lakers-aðdáandi. Hann komst í kynni við stjörnurnar þegar sonur hans hóf að æfa körfubolta og vakti Björn strax athygli fyrir hversu áhugasamur körfubolta-pabbi hann væri.


„Ég hef verið Lakers-aðdáandi alveg frá því ég var lítill krakki og þekkti vel til liðsins þegar ég flutti út til Los Angels - og var eðlilega mikill aðdáandi Magic Johnson,“ segir Björn Helgi í samtali við Grafarvogur.net


„Þegar ég flutti út til Los Angels fór ég mikið á leiki með Lakers, sá Kobie Bryant, Shaquille O'Neal og Robert Horry. En til að gera langa sögu stutta fór ég með strákinn minn í Camp Lakers æfingabúðirnar í Los Angels og þar var ég þetta foreldri sem var svo ákaft í allri minni framgöngu að það vakti athygli NBA-stjarnanna. Þeir sögðu við mig að ég hefði meiri áhuga á þessu en krakkarnir.“


Björn Helgi segir að Elite Camp á Íslandi hafi verið haldið í Garðabænum í fyrra og þar hafi Michael Cooper mætt og fyrir vikið hafi verið auðvelt að fá æfingabúðirnar aftur til Íslands þetta árið.


„Robert Horry vildi koma til landsins núna sem og þeir James Worthy og Byron Scott. Magic er búinn að sjá myndir héðan frá Íslandi og fylgist með okkur,“ segir Björn Helgi.


„Það sem gefur okkur bræðrum svo mikið er að horfa á krakkana spila og æfa körfubolta. Sjá hvað þeir bera mikla virðingu fyrir erlendu þjálfurunum og eru viljugir til að hlusta og læra. Þessar stjörnur koma með svo mikla skilvirkni á æfingarnar en jafnframt aga og skemmtun. Hér er tónlistin á fullu til að ýta undir stuðið og börnin njóta sín í botn. Börnin fara heim að kvöldi, borða, beint í rúmið og mæta svo áhugasöm hér að morgni daginn eftir. Þetta er æðislegt,“ segir Björn Helgi Baldvinsson.


Stórgott framtak hjá Fjölni að fá æfingabúðirnar þetta árið í Grafarvoginn. - JGH

Björn Helgi er kvikmyndagerðarmaður sem bjó í Los Angels í 25 ár og komst þar í kynni við stjörnur LA Lakers.