Virði Alvotech rýrnaði um 300 milljarða á síðasta ári - fór úr 500 niður í 200 milljarða
30. desember 2025
ÁRAMÓTASPJALL RITSTJÓRANNA.
Eggert Þór Aðalsteinsson, hlutabréfagreinandi hjá Kviku, mætti í Áramótaspjall ritstjóranna til okkar Sigurðar Más Jónssonar og sagði að miklar væntingar hafi verið í upphafi árs um minnkandi verðbólgu og nokkra vaxtalækkun í kjölfarið en sú hafi ekki orðið raunin og þetta hafi haft veruleg áhrif á hlutabréfamarkaðinn og ýtt undir innlánsreikninga bankanna.
Af einstökum félögum í Kauphöllinni staldri flestir við hrun á gengi bréfa í Alvotech en markaðsvirði félagsins hafi lækkað úr rúmum 500 milljörðum króna í um 200 milljarða og það hafi litað flest hlutabréfasöfn á árinu. Árið 2026 verði stórt ár fyrir félagið og vonandi verði það þá komið með 5 líftæknilyf í sölu vestanhafs í lok næsta árs.
Þá ræðir hann stöðu bankanna og stjórnarformannskjörið innan Íslandsbanka. Hann segir ennfremur að mikið eigið fé bankanna geri þá ekki eins arðsama og bankanna á Norðurlöndunum þrátt fyrir að íslensku bankarnir séu með hvað bestu ávöxtunina hérlendis á þessu ári.
Sjá allt viðtalið hér í meðfylgjandi klippu. - JGH
Eggert Þór Aðalsteinsson, hlutabréfagreinandi hjá Kviku.


