Einstaklingar eiga 1.800 milljarða innstæður í bönkunum - 90 milljarðar fóru í Íslandsbanka
ÁRAMÓTASPJALL RITSTJÓRANNA. Magnús Harðarson, forstjóri Nasdaq Iceland, Kauphallarinnar, segir í Áramótaspjalli okkar Sigurðar Más að ákveðin ládeyða, hafi einkennt hlutabréfamarkaðinn á Íslandi á síðasta ári en verði vaxtalækkun á næsta ári megi gera ráð fyrir að úrvalsvísitalan taki við sér.
JBT-Marel var skráð í upphafi árs en aðrar nýskráningar urðu ekki þar sem markaðsaðstæður voru fremur erfiðar. Nokkur fyrirtæki hafa sýnt áhuga á skráningu og bíða betri tíma á markaðnum – bíða á kantinum.
Það sem reis hæst á árinu, að mati Magnúsar, var hinn mikili áhugi almennings á hlutabréfum í tengslum við útboðið á Íslandsbanka en 31 þúsund einstaklingar tóku þátt í því útboði – og þar af 18 þúsund nýir.
Einstaklingar eiga um 1.800 milljarða króna í innistæðureikningum bankanna þannig að hluturinn sem var seldur í Íslandsbanka – og nam um 90 milljörðum – er rétt um 5% af peningaeign þeirra.
Sjá allt viðtalið við Magnús í meðfylgjandi klippu. - JGH
Magnús Harðarson, forstjóri Nasdaq Iceland.


