Svo sem engin kosningaganga í hverfinu en það þarf að viðra þær Kráku og Kíru
Það er alltaf gaman að rekast á granna sína á hefðbundinni morgungöngu og spjalla stuttlega við þá - hvað þá þegar stutt er til kosninga. Um nóg er að ræða, auðvitað.
Þannig var það þegar ég hitti Grafarvogsbúann Karlottu Pálmadóttur á göngu minni í morgun en hún hefur búið í Hamrahverfinu í þrjátíu og þrjú ár og segir hvergi betra að búa. Ég var eins og fyrrum, þekktur forsætisráðherra sem bætti alltaf um betur og nefndi töluna þrjátíu og átta ár.
„Stelpa og strákur?,“ varð mér á orði þegar ég sá ferfætlingana tvo sem hún var að viðra og með í taumi en annar var með bláa ól og hinn bleika. „Nei, þetta eru tvær dömur; Kráka og Kíra.“
Kráka er verulega eldri, 13 ára, en Kíra 6 ára enda augljóslega sprækari að sjá. Þær eru af kínversku hundakyni, Shih Tzu, en það kyn er sagt geta orðið allt að 20 ára.
Systkini Kráku ku heita Krummi og Kría. - Nú, það eru bara K-in þrjú, sagði ég mjög djúpur.
- Kosningar á laugardag. Hafa þær ekki örugglega kosningarétt? „Jú, eigum við ekki að segja það.“
- Ertu sjálf búin að ákveða hvað þú ætlar að kjósa?
„Já, þann flokk sem er bestur fyrir Grafarvog. Mér finnst úthverfin hafa setið á hakanum í allt of langan tíma. Það snýst allt um 101.“
Og bætir við: „Umhirða borgarinnar finnst mér alls ekki í lagi. Snjómokstur lélegur í úthverfunum og það var illa slegið og seint sl. sumar hér í Grafarvogi - og víða alls ekkert slegið, samkvæmt einhverri nýrri tískulínu. Göngustígar hafa látið á sjá og steinar kvarnast úr hraðahindrunum án þess að þeir séu lagaðar og settir á sinn stað.
Það má gera miklu betur, því hér er mjög gott að búa. Þegar ég ek yfir Gullinbrúna heim á leið, finnst mér ég oft komin í litla friðsæla sveit; langt frá skarkalanum.“
Morgunganga sem var svo sem engin kosningaganga, hún er á kjördag. En vor í lofti og gaman að spjalla í sveitasælunni og þær Kráka og Kíra alveg hundafslappaðar. - JGH

Karlotta Pálmadóttir, íbúi í Grafarvogi, Hamrahverfinu, í þrjátíu og þrjú ár. Hér með þær Kráku 13 ára (með bláu ólina) og Kíru 6 ára. Svo sem engin kosningaganga en auðvitað bárust kosningarnar á laugardag í tal, þó það nú væri.


