„Svo þétt byggt að kirkjugarðurinn verður eini græni bletturinn í Grafarvogi“

13. maí 2026

Á hinum líflega fundi Íbúasamtaka Grafarvogs í Skálanum í Gufunesi í síðustu viku féllu að vonum mörg orð og ýmsum fundarmönnum var heitt í hamsi í spurningum sínum. Þetta var skemmtilegur og þarfur fundur með fulltrúum allra flokkanna í Reykjavík.


Á meðal mola sem sem féllu til á fundinum þá kom þessi frá einum fyrirspyrjanda þegar rætt var um þéttingu byggðar og ágang borgarinnar í græn svæði í Grafarvogi: „Það verður svo þétt byggt að kirkugarðurinn verður eini græni bletturinn í Grafarvogi.


Og heyrðist þá muldrað: „Já, og þar er mjög þétt byggð.“ - JGH

Frá fundi Íbúasamtaka Grafarvogs í Skálanum í Gufunesi í síðustu viku. Skemmtilegur og þarfur fundur.