Vinda á ofan af ruglinu og breyta aftur gatnamótunum við Höfðabakka og Bæjarháls

5. október 2026

Núna liggur fyrir tillaga hjá umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkurborgar um að vinda ofan af ruglinu og breyta aftur gatnamótunum við Höfðabakka og Bæjarháls. Afgreiðslu tillögunnar var frestað til næsta fundar.


Frétt um þetta birtist á mbl.is í morgun og má sjá hana  hér.


Fjórir flokkar í borgarstjórn standa að tillögunni; meirithlutaflokkarnir Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsóknarflokkur - sem og Miðflokkurinn. Margir eru á því að laga þurfi önnur gatnamót við Höfðabakkann en farið var í að breyta fimm þeirra um leið og umferðarljós voru endurnýjuð.


Grafarvogur.net hefur flutt fjölda frétta um framkvæmdirnar við þessi fimm gatnamót við Höfðabakka. En með breytingum við gatnamót Höfðabakka og Bæjarháls var búin til algjör umferðarteppa á álagstímum. Það sem meira var; það sáu það allir fyrir að í algjört öngþveiti stefndi.

Hér má sjá hvar tvær vinstribeygjur inn á Bæjarhálsinn voru gerðar að einni þannig að úr varð tappi sem leiddi til þess að massa-umferð fór um Ártúnsholtið að gatnamótunum við Bæjarhálsinn.

Í frétt mbl.is segir meðal annars: „Tillagan lýtur að því að hafinn verði undirbúningur úrbóta á gatnamótum Höfðabakka og Bæjarháls, þar sem m.a. er gert ráð fyrir því að lengja vinstribeygjuakrein frá Bæjarhálsi, lengja akrein sunnan gatnamótanna og þá á að breyta akreinaskipan frá Streng.


Jafnframt á að hefja undirbúning að endurgerð hægribeygjuframhjáhlaups frá Bæjarhálsi til norðurs inn á Höfðabakka, sem fjarlægt var við hinar umdeildu breytingar sem gerðar voru á gatnamótunum. Einnig verði kannað hvort fýsilegt sé að gera undirgöng undir Höfðabakka, rétt norðan við gatnamótin, til að tengja göngu- og hjólastíga beggja vegna götunnar.


Segir í tillögunni að áður en endanleg ákvörðun um framkvæmdir verði tekin, verði lagt kostnaðarmat fyrir umhverfis- og skipulagsráð, áætlaður framkvæmdatími og möguleg tímasetning framkvæmda, auk upplýsinga um hvort og með hvaða hætti þurfi að bjóða verkið út.

Hægri beygjuvasi sem var áður inn á Ártúnsholtið; götuna Streng, var fjarlægður og við það minnkaði flæðið verulega. 

Morgunblaðið hefur þetta eftir Friðjóni R. Friðjónssyni, varaformanni umhverfis- og skipulagsráðs: „Við teljum, eins og íbúar í Árbæjarhverfi gera líka, að þarna hafi verið gerð mistök og við vorum skýr í kosningabaráttunni um að við vildum leiðrétta þetta. Eftir að breytingarnar voru gerðar sjáum við að umferðin inn í Streng á Ártúnshöfða hefur margfaldast.“

Það sáu þetta svo til allir fyrir - nema auðvitað fyrrverandi meirihluti sem réðst í breytingarnar en upphaflega átti aðeins að skipta um umferðarljós.

Friðjón R. segir ennfremur við Morgunblaðið að ekki hafi fundist skýringar á því af hverju umferðin inn í Ártúnshöfðahverfið hafi aukist jafn mikið og raunin sé, en það sé að hluta til ástæðan fyrir því að verið sé að bregðast við nú.


Þarna hljóta margir lesendur að staldra við því umferðarteppan á Höfðabakkanum varð til þess að margir tóku upp á því að beygja af Ártúnsbrekkunni inn á Ártúnsholtið við N1 til að koma annars staðar að gatnamótunum við Bæjarhálsinn.


Friðjón R. bætir við að íbúar í Ártúnsholti hafi kvartað mjög yfir aukinni umferð um hverfið. „Enginn vilji stuðla að aukinni umferð um íbúðahverfi.“

Grafarvogur.net hefur flutt fjölda frétta um breytingarnar sem gerðar voru á fimm gatnamótum við Höfðabakkann. Núna á að breyta einum af þessum fimm aftur; gatnamótunum við Bæjarháls og Höfðabakka.

Hér var beygjuvasi til hægri af Bæjarhálsi inn á Höfðabakkann til norðurs fjarlægður. Nú kemur hann aftur.

Strengur heitir gatan sem liggur frá Höfðabakka inn á Ártúnsholtið. En af Streng er ekið að Árbæjarsafninu.


Frétt mbl.is í morgun um tillöguna um að breyta aftur gatnamótunum við Höfðabakka og Bæjarháls.