Við Grafarvogsbúar erum svo sem engir Þingeyingar en stundum þurfum við meira loft
Við gátum ekki stillt okkur um að leika okkur aðeins með fyrirsögnina þegar kemur að umfjöllun um loft og meira loft hjá okkur Grafarvogsbúum.
En ýmsir hafa spurt sig að því hvar hægt sé að fá loft í dekkin á Olís-stöðinni við Gullinbrú eftir að Pikkolo skúrinn kom til sögunar og hin rótgróna loftpumpa sem þar var fékk að róa.
Dælan eða rafmagnspumpan er núna á Glans-stöðinni og auðvelt að nálgast hana þar. Nóg er nú loftið þar á bæ og það leikur um loftslönguna og í dekkin - sem sum eru með slöngum.
Stundum hafa þessar loftdælur á bensínstöðvum verið nefndar loftpressur. Við sem unnum á loftpressu um tíma í þá gömlu góðu eigum frekar erfitt með að tala um loftpressur á bensínstöðvum. Þær tilheyra frekar jarðvegsvinnu.
Aðalatriðið er að dekkin blási út. Það gera þau núna með glans.
- JGH

Nóg er nú loftið á rafmagnsdælunni á Glans-stöðinni.

Pikkolo-skúrinn á Olís-planinu þar sem loftdælan góða var áður. En dælan fór ekki langt; hún er á Glans-stöðinni.

