Allir í Egilshöll á morgun! Hún verður hrikaleg keppnin í hinu árlega Árgangamóti Fjölnis
Hún verður hrikaleg keppnin í hinu árlega Árgangamóti Fjölnis í knattspyrnu sem fram fer í Egilshöll á morgun. Fyrstu leikirnir hefjast kl. 10:00 í fyrramálið.
Alls mæta 19 lið karla og 7 lið kvenna - og verða alls spilaðir 57 leikir. Takk fyrir.
Búið er að loka fyrir skráningu. Til að geta verið með verða menn að hafa æft eða spilað með Fjölni; haft tengingu við félagið.
Núverandi meistaraflokksleikmenn Fjölnis og leikmenn í efstu tveimur deildum á Íslandi eru ekki með leikheimild.

Hverjir eru bestir? Og hverjar eru bestar? Alls 19 lið karla og 7 kvenna skráð til leiks og alls leiknir 57 leikir. Partýið færist svo yfir í Fjölnisveislusalinn við Dalhús um kvöldið með miklu og glæsilegu lokahófi.
Þetta er ekkert smá mót. Raunar stuðmót sem endar með stórkostlegri veislu og verðlaunaafhendingu í Fjölnishátíðarsalnum við Dalhús annað kvöld.
Þetta er ellefta árið í röð sem þetta mót er haldið og er áhuginn á því mikill. Það er í raun beðið eftir því þegar líður að hausti.
Hver leikur er 12 mínútur, 6 eru í liði og fjórir leikir í gangi hverju sinni - og alls 57 leikir spilaðir. Það þarf gott skipulag til að koma þessu öllu fyrir.
'88-árgangurinn hjá konunum hefur reynst sigursæll á þessu móti. Það hefur hins vegar verið breytilegra hjá körlunum.
Allir í Egilshöll á morgun; Áfram Fjölnir. - JGH

Þeir verða mættir í Egilshöll í fyrramálið; Birgir Örn Birgissyni, rekstrarstjóri knattspyrnudeildar Fjölnis, og Gunnar Már Guðmundsson, þjálfari Fjölnis, sem stundum hefur verið nefndur Herra Fjölnir, og er í hinum þekkta '83-árgangi félagsins.

Núverandi meistaraflokksleikmenn Fjölnis og leikmenn í efstu tveimur deildum á Íslandi eru ekki með leikheimild.

