Viktor Orri og Arndís Ýr sigruðu í 10 km Fjölnishlaupi Olís 2025
1. júní 2025
FJÖLNISHLAUP OLÍS 2025.
Viktor Orri Pétursson og Arndís Ýr Hafþórsdóttir sigruðu í 10 km hlaupi Fjölnishlaups Olís 2025 sem haldið var með pompi og prakt sl. fimmtudag, uppstigningardag. Hlaupið tókst í alla staði mjög vel og var keppt í skemmtiskokki (1,4 km), 5 km og 10 km hlaupi. Þátttaka var góð en alls tóku 365 hlauparar þátt að þessu sinni.
Á meðfylgjandi mynd eru hlaupaleiðirnar sýndar. Fallegar hlaupaleiðir.
Hér
má sjá úrslit í 10 km hlaupi karla en þar tóku 45 þátt. Sigurvegari: Viktor Orri Pétursson.
Hér
má sjá úrslit í 10 km hlaupi kvenna
en þar tóku 40 þátt. Sigurvegari: Arndís Ýr Hafþórsdóttir.
Hér
má sjá úrslit í 5 km hlaupi karla en þar tók 51 þátt. Sigurvegari: Jökull Bjarkason.
Hér
má sjá úrslit í 5 km hluapi kvenna en þar tóku 46 þátt. Sigurvegari: Iðunn Björg Arnaldsdóttir.
Hér
má sjá úrslit í skemmtiskokki karla en þar tók 81 þátt. Sigurvegari: Sveinn Elías Elíasson.
Hér
má sjá úrslit í skemmtiskokki kvenna en þar tóku 102 þátt: Sigurvegari: Ósk Norðfjörð Sveinsdóttir.
Þetta var í 37. skipti sem Fjölnishlaup Olís er haldið. - JGH