Hlýjasti maí og hlýjasta vor frá upphafi mælinga - rétt upp fyrir vorið 1974

1. júní 2025

HLÝJASTA VORIÐ. Á Veðurstofunni nær vorið til tveggja mánaða, apríl og maí. Trausti Jónsson veðurfræðingur reiknaði meðalhita í byggðum landsins og bar saman við fyrri ár í nýrri færslu á bloggi sínu . Í ljós kemur að vorið 2025 er það hlýjasta frá upphafi mælinga og sjónarmun (og reikningslega ómarktækt) hlýrra heldur en vorið 1974. 


Traustu segur að það sem af er ári hafi verið óvenjuhlýtt (nema janúar).


Í Reykjavík er þetta næsthlýjasta ársbyrjun síðustu 75 ára og sú þriðja hlýjasta á Akureyri og á Dalatanga. Nánari upplýsingar um þá stöðu - og niðurstöðu maímánaðar koma frá Veðurstofunni fljótlega eftir helgina, en svo virðist sem maí sé nokkuð öruggur með að taka efsta sætið um allt land, sumstaðar meira að segja með miklum mun - en meir um það síðar. 


Þá verður einnig ljóst hvernig vorhitinn raðast í hinum ýmsu landshlutum, ekki er víst að það nái alls staðar toppsætinu af 1974,“ segir Trausti.


Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir á FB-síðu sinni að maí sé sá heitasti frá upphafi mælinga.  „Á Akureyri (Þórunnarstræti) endaði meðalhti mánaðarins í 10,1°C. Það er langhæsti meðalhiti í maí sem nokkru sinni hefur mælst á veðurstöð hérlendis. Sú tala sem kemur næst er 9,5 eða 9,6.


Í Stykkishólmi liggja fyrir mælingar enn lengur eða frá 1830.  Maí-hitinn þar reiknast 8,7°C og fyrra met er frá 1935 (8,2°C). Fyrsta árið (1830) var reyndar ívið hlýrra, en óráðlegt er að treysta því gildi,“ segir Einar.  - JGH

KORTIÐ. Nýjasta talan, 2025 sker sig nokkuð úr, ásamt hinni óvenjulegu tölu vorsins 1974. Ekki liðu þá nema fimm ár þar til eitt kaldasta ár 20.aldar reið yfir, hið eftirminnilega 1979. Þá voru liðin 30 ár frá ámóta vori, 1949. Ekki hafa viðlíka köld vor komið síðan.