Hvers vegna hætt var við söluna á Olíudreifingu? Svar Finns vekur athygli
1. júní 2025
HLUTHAFASPJALLIÐ. VIÐSKIPTI.
Það kom mörgum á óvart á dögunum þegar eigendur Olíudreifingar, Festi (60%) og Hagar (40%), hættu við söluna þrátt fyrir nokkur tilboð og áhuga kaupenda.
Finnur Oddsson, forstjóri Haga, segir í Hluthafaspjallinu
okkar Sigurðar Más Jónssonar á Brotkast.is, að tilboðin hafi ekki verið nægilega hagstæð en fleira hafi komið til - og það svar vakti athygli okkar félaganna - að orkuskiptin geti krafist meira geymslurýmis fyrir fljótandi eldsneyti því orkuskipti þýði ekki að markaðurinn fari allur yfir í rafmagn.
„Grunnhugmyndin að söluferlinu á Olíudreifingu var einfaldlega sú hvort aðrir væru betur til þess fallnir að stýra fyrirtækinu inn í framtíðina því það eru ákveðnar takmarkanir vegna hins sameiginlega eignarhalds okkar keppinautanna,“ segir Finnur.
Hann bætir því við að í söluferlinu hafi eigendurnir sömuleiðis séð meiri verðmæti í fyrirtækinu og sterkari markaðsstöðu í framtíðinni og þótt fjöldi rafbíla muni aukast í orkuskiptunum þá verði kolefniseldsneyti áfram með nokkuð sterka stöðu á næstu árum, samkvæmt spám.
Og þess utan bendi spár til þess að aðrir fljótandi eldsneytiskostir verði sterkari en gert hafi verið ráð fyrir - og það eldsneyti þurfi meira geymslurými en bensín og dísil og að þar liggi veruleg tækifæri fyrir Olíudreifingu. - JGH