Vigfúsarstofa verður formlega vígð í kirkjunni fyrir tónleikana á fimmtudag
Vigfúsarstofa verður formlega vígð fyrir minningartónleikana á fimmtudag og mun fjölskylda séra Vigfúsar Þórs Árnasonar og Elínar Pálsdóttur verða viðstödd vígsluna. Það er mikill sómi að þessu hjá Grafarvogskirkju. Mikill áhugi er á tónleikunum og hefur miðasala farið vel af stað en allur ágóði rennur í nýstofnaðan Hollvinasjóð Grafarvogskirkju. Vigfús og Elín voru afar samrýmd hjón og létust með aðeins sex mánaða millibili á síðasta ári.
Vigfúsarstofa er á annarri hæð kirkjunnar þar sem Lions-menn höfðu áður aðstöðu og er öll hin vistlegasta. Þarna eru munir sem voru á skrifstofu Vigfúsar á heimili þeirra hjóna við Logafoldina; nefna má bækur, bókaskápa, skrautmuni, altari, myndir og fleira mætti upp telja. Segja má að heimaskrifstofa Vigfúsar hafi verið flutt um set í hverfinu.
„Okkur þykir mjög vænt um Vigfúsarstofu og finnst ánægjulegt að hún verði formlega vígð fyrir tónleikana til heiðurs þeim hjónum,“ segir Arna Ýrr Sigurðardóttir, sóknarprestur í Grafarvogi.
„Stofan er vistleg og andi Vigfúsar er með okkur; við finnum það vel. Stofan er talsvert notuð, t.d. fyrir fundi sóknarnefndar sem og aðra fundi. Það eru góðir og notalegir straumar sem leika hér um salarkynni,“ segir Arna Ýrr.

Bókaskápar, bækur, munir, altari og aðrir dýrgripir sem Vigfús hafði á skrifstofunni heima hjá sér í Logafold prýða Vigfúsarstofu sem er fundarherbergi sóknarnefndar.
Hún segir ennfremur að vígsla stofunnar á fimmtudag verði látlaus og fámenn. „Það verður ánægjulegt að fá fjölskyldu þeirra hjóna hingað til okkar fyrir tónleikana og vera með henni þegar við vígjum stofuna formlega. Svo munum við eiga fallega og góða stund á tónleikunum um kvöldið til að minnast þeirra. Ég veit að þeir verða vel sóttir; svo vinsæl voru þau hjón.“
Lions-menn höfðu þetta herbergi til margra ára en eftir að þeir fluttu aðstöðu sína annað var farið að funda í herberginu reglulega en jafnframt var hluti þess hólfaður af fyrir skrifstofu. Sömuleiðis var ákveðið að koma málverki af Vigfúsi fyrir í í herberginu og við það má segja að hugmyndin að Vigfúsarstofu hafi kviknað. Í rauninni hefur herbergið verið kallað Vigfúsarstofa í rúm tvö ár.
„Þau hjón vissu af þessari ráðstöfun okkar og það gladdi þau mjög. Þegar við færðum þetta í tal við Vigfús á sínum tíma hafði hann á orði að hann ætlaði að ánafna kirkjunni bókasafn sitt, bókaskápa og þá skrautmuni sem væru á skrifstofu hans heima,“ segir Arna Ýrr.

Þessa mynd af fjölskyldu þeirra hjóna er að finna í í bókaskápnum í Vigfúsarstofu. Fjölskyldan verður viðstödd vígslu Vigfúsarstofu.
Hún segir ennfremur að engin aðstaða hafi verið fyrir hendi þegar Vigfús varð sóknarprestur í Grafarvogi. „Engin var kirkjan og sóknin nýstofnuð. Það kom í hans hlut að ryðja brautina og byggja upp þessa viðamiklu sókn sem státar núna af kröftugu starfi og einni glæsilegustu og stærstu kirkju landsins.“
Í Vigfúsarstofu blasir við lítið en virðulegt altari og altaristafla en hvoru tveggja hafði hann komið fyrir á heimili sínu. „Altarið setur mikinn svip sinn á þessa notalegu vistaveru sem Vigfúsarstofa er og okkur fannst vel við hæfi að hengja mynd af Siglufjarðarkirkju á vegginn við hlið altarisins en Vigfús var prestur á Siglufirði um árabil og áður en hann kom hingað í Grafarvoginn.“

Þetta fallega altari og altarismynd var Vigfús með heima hjá sér. Mynd af Siglufjarðarkirkju er á veggnum til hliðar.
NÝSTOFNAÐUR HOLLVINASJÓÐUR
Arna Ýrr segir að allur ágóði af tónleikunum renni í nýstofnaðan Hollvinasjóð Grafarvogskirkju sem hafi það hlutverk að styðja við starf kirkjunnar, ekki síst fjárhagslega þar sem ríkið hafi þrengt mjög að rekstrinum með því að taka til sín sífellt stærri skerf af sóknargjöldum.
Mörg félagasamtök eru með svona Hollvinasjóði, eins konar bakhjarla, eins og Rauði krossinn og Landsbjörg, en framlögin njóta viðurkenndra skattfríðinda og eru frádráttarbær; líkt og margir kannast við. Margir kjósa að greiða mánaðarlega með þessu formi en aðrir kannski einu sinni á ári. Það er allur gangur á því.
„Við erum með öll skilyrði uppfyllt með Hollvinasjóðinn og veitir sannast sagna ekki af stuðningi. Það er von mín að sem flestir sjái sér fært að gerast hollvinir, svo starfið í sókninni nái að dafna og blómstra áfram í okkar einstaka samfélagi hér í Grafarvogi,“ segir Arna Ýrr Sigurðardóttir að lokum.
- JGH

Arna Ýrr Sigurðardóttir, sóknarprestur í Grafarvogi, segist binda miklar vonir við nýstofnaðan Hollvinasjóð Grafarvogskirkju og vonast til að sem flestir gerist hollvinir kirkjunnar svo starfið megi blómstra og dafna vel áfram.

Þetta fallega málverk af Vigfúsi prýðir Vigfúsarstofu og fer vel á því. „Andi Vigfúsar er með okkur og það eru góðir og notalegir straumar í stofunni.“

