Mætum öll á stórtónleikana í kirkjunni í kvöld
Það styttist í stórtónleikana í kirkjunni í kvöld en þeir hefjast klukkan átta og er hægt að verða sér úti um miða við innganginn í kirkjunni.
Diddú, Gissur Páll, Jóhann Friðgeir og Matti Matt ásamt nokkrum kórum láta tónana fljót a.
Þetta verður eitthvað.
Tónleikarnir eru til minningar um þau eðalhjón Vigfús Þór Árnason og Elínu Pálsdóttur en þau létust með aðeins sex mánaða millibili á síðasta ári.
Sérstök Vigfúsarstofa verður svo vígð á annarri hæð kirkjunnar fyrir tónleikana þar sem fjölskylda þeirra hjóna verða viðstödd í látlausri vígsluathöfn.
Mætum öll og minnust þeirra hjóna um leið og við njótum söngs og tónlistar stórlistamanna í kirkjunni.
Klukkan 20 - klukkan átta á eftir. - JGH

Þau hafa margoft sungið í kirkjunni og verða í essinu sínu í kvöld.


