Borgarljós í blíðviðri! Horft af Gufuneshöfða í átt til Sólheima og sólheima
20. september 2026
Bogarljósin skörtuðu sínu fegursta í blíðviðrinu í gærkvöldi. Hér erum við á Gufuneshöfða og horfum yfir Elliðaárvog og í átt að Laugardalnum.
Háhýsin við Sólheima blasa við sem bakraddir - og eru auðvitað á háu nótunum; skiljanlega.
Kvöldroðinn í fjarska er sem fallegir sólheimar.
Haustkvöld í Reykjavík og haustjafndægur innan seilingar; eftir aðeins þrjá daga, miðvikudaginn 23. september!
Allar árstíðir hafa sinn sjarma. - JGH

Samskip eru við Kjalarvoginn.

Skýin láta vel að hvort öðru í roðanum.


