Hulda Guðmunda hafði í nógu að snúast í gær í hlutverki páskakanínunnar

16. mars 2026

Grafarvogsbúinn Hulda Guðmunda Óskarsdóttir hafði í nógu að snúast í gær þegar hundruð Grafarvogsbúa og Árbæinga mættu í Gufunesið í árlega páskaeggjaleit sjálfstæðismanna í þessum hverfum. Hulda brá sér þar í hlutverk páskakanínunnar og stóð sig vel, glaðleg og glaðsinna og í miklu páskastuði þótt enn sé svolítið í páskana.


Þetta var ekki í fyrsta sinn sem hún bregður sér í þetta hlutverk á þessum skemmtilega viðburði.


Að sjálfsögðu var hún í miklu stuði þegar hún hitti þingkonuna og Grafarvogsbúann, Diljá Mist Einarsdóttur, sem mætti á svæðið með hundinn sinn hann Simba. Og hvuttinn sá er bangsalegur.


Hann tók svolítið í en í fang þeirra fór hann, blessaður karlinn, allt gert fyrir ljósmyndarann.


Simbi karlinn; algjör sómamaður en samt ekkert skyldur Simba sjómanni sem Haukur Mortens söng um. - JGH

Hér taka þær Hulda Guðmunda Óskarsdóttir og Diljá Mist Einarsdóttir Simba karlinn í fangið fyrir ljósmyndarann.

Jú, jú, Simbi var alveg til í að gjóa aðeins til ljósmyndarans...

...en samt ekki lengi.