Mögnuð er hún að morgni mánudags - sem og aðra morgna

16. mars 2026

Hún er mögnuð Esjan á mánudagsmorgni - sem og aðra morgna. Mjög tilkomumikill kaldur skýjabólstur læddist yfir hana í morgun og faðmaði toppinn.


Blár himinninn hafði hlutverki að gegna og lét til sín taka sem leiktjald og eins konar „bakrödd“ í veðurtónum þessa fallega borgarfjalls.


Við skýjaglóparnir hrífumst jafnan þegar hún á í hlut og myndum hana ótt og títt í magnaðari sýn sterkra segulkrafta. - JGH

Aðdráttarafl. Sýn sem er eins konar segull.

Fallegt fjall norðan Alpa.

Það er smá spölur úr Grafarvoginum að Esjunni - þó ekki eftir þessum vegi sem liggur út í Geldinganes.

- Hvaða fjall er þetta? spurði maðurinn og benti á Esjuna. - Ég veit það ekki, en það er búið að vara þarna lengi, var svarað.