Höfðabakkinn í eldlínunni og ljóst hvert leiðin liggur. Dyggur lesandi notaði gervigreindina

6. október 2026

Áhugi Grafarvogsbúa á umferðinni um Höfðabakka og þeim breytingum sem þar var ráðist í á síðasta ári er eðlilega mikill enda Höfðabakkinn helsta umferðaræðin inn og út úr hverfinu.


Eftir frétt okkar í gær um að núverandi meirihluti í borginni ætli að færa gatnamót Höfðabakka og Bæjarháls sem mest í fyrra horf fengum við þessa skemmtilegu mynd frá dyggum lesenda okkar.


Hann var ánægður með skrif okkar um framkvæmdirnar við Höfðabakkann frá því þær hófust um mitt sumar í fyrra.


Stórt og mikið skilti þar sem leiðin liggur að Grafarvogi.net. Gaman að þessu. Gervigreindinin fer augljóslega létt með þetta hjá Grafarvogsbúum.


Við þökkum kærlega fyrir myndina. Hún fellur auðvitað undir hugtakið „fake news“ og er eina falsfréttin sem við höfum birt.


En við getum auðvitað ekki annað en birt hana; slík er sendingin. - JGH

Fengum þessa skemmtilegu mynd frá dyggum lesanda okkar sem leitaði á náðir gervigreindarinnar við gerð hennar. Við þökkum fyrir og birtum fyrstu og einu falsfréttina okkar.

Eftir frétt okkar í gær um að færa eigin gatnamótin við Höfðabakka og Bæjarháls sem mest í fyrra horf fengum við óvæntan en skemmtilegan póst til okkar.