Vetrarríki í byrjun vors - rigning og hressilegur vindur undir lok vikunnar
Vorjafndægur var sl. föstudag og það verður að segjast eins og er að vorið byrjar með töluverðu vetrarríki um allt land. Það var svo sem ágætisveður á röltinu í dag en það hafa verið góðar og hressilegar hviður inn á milli.
Reyndar var búið að moka og salta hluta af göngustígum í Hamrahverfinu í dag - á sunnudegi - og var það hið besta mál. Það mættu vera kosningar oftar, hugsaði ég með mér þegar ég rölti sólbrædda göngustígana.
Ekki að það sé uppörvandi en vetur konungur verður áfram við völd áfram - þótt kjörtímabili hans ljúki jafnan á vorin. Hann sækir víst ekki völd sín til kjósenda á fjögurra ára fresti.
Hér á árum áður var oft snjór og vetrarríki fram í miðjan apríl.
En við erum orðin góðu vön - ekki satt? - JGH

Göngustígurinn - öðrum megin í Lokinhömrunum - mokaður og saltaður í sólbráðinni. Öðrum megin? Það var svo sem allt í lagi - þetta var nú einu sinni sunnudagur.

Á Strandvegi kl. 16:19 sl. föstudag. Vetur konungur sleppir ekki völdum sínum alveg strax. Það verður góð demba og rok þegar líður á vikuna.

Það var og! Hádegið á fimmtudag. Þetta heitir víst rigning og rok - ekki satt?


