Rauðar tölur í Kauphöllinni en fiskurinn í hæstu hæðum - Ægir Páll gestur okkar Sigurðar Más

23. mars 2026

Það var fjörugt samtal við Ægi Pál Friðbertsson, forstjóra Ice Seafood, í nýjasta þætti okkar Sigurðar Más Jónssonar í hlaðvarpinu Hluthafaspjall ritstjóranna sem við tókum upp sl. föstudag og er sýndur á efnisveitunni Brotkast.is. Gestur okkar að þessu sinni var Ægir Páll Friðbertssson, forstjóri Ice Seafood. Þátturinn er hér öllum opinn og aðgengilegur:



SALA SÝNAR TIL SÍMANS (21:43 mín.)

Það var af ýmsu að taka í þættinum. Við tókum okkar spjall að venju í upphafi og ræddum Kauphöllina, tekjur fjölmiðlahluta Sýnar og söluna á visi.is, ja.is og útvarpsmiðlum Sýnar til Símans og veltum fyrir okkur verðinu. Við teljum að Síminn þurfi að fá jafnvel 500 milljóna króna hagnað á ári til að þessi kaup greiði sig upp á næstu tíu árum. Okkur finnst verðið, rúmir 5 milljarðar hátt - ekki síst í ljósi þess að núna er kaupendamarkaður í Kauphöllinni. Alvotech fékk sömuleiðis sína umfjöllun.


KRISTRÚN OG ESB (12:27 mín. -21:43 mín.)

Ég tók nokkurn snúning á Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra og tel að hún hafi misst völdin til Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur og Ingu Sælands og að hún sé algerlega undir hælnum á þeim. Að mínu mati er Kristrún of ung í þetta starf og það skal rifjað upp að hún hafði enga stjórnunarreynslu áður en hún settist í stól forsætisráðherra og það reynsluleysi hennar er orðið áberandi.


ÆGIR PÁLL FRIÐBERTSSON (25:54 mín.)

Þrátt fyrir að rauði liturinn hafi einkennt síðustu daga í Kauphöllinni þá eru góðu fréttirnar þær að verð á íslenskum fiski er í hæstum hæðum erlendis og þar vegur minna framboð úr Barentshafi, Smugunni, hvað mestu.


Stórskemmtilegt viðtal við Ægi Pál Friðbertsson, forstjóra Ice Seafood. - JGH

Ægir Páll Friðbertsson, forstjóri Ice Seafood, er hafsjór af fróðleik um íslenskan sjávarútveg og fer vel yfir stöðuna á erlendum mörkuðum um þessar mundir. Fiskurinn er í hæstu hæðum vegna minna framboðs erlendis frá, t.d. Barentshafi.

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra fékk sína umfjöllun í þættinum og þá sem stjórnandi og leiðtogi. Hún hafði enga stjórnunarreynslu áður en hún varð forsætisráðherra og það reynsluleysi er svo sannarlega farið að há henni og orðið áberandi í meira lagi. Hún sýnist ekkert hafa að gera í Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur og Ingu Sæland og vera undir hælnum á þeim. 

Frísklegar umræður að venju í hlaðvarpsþætti okkar Sigurðar Más; Hluthafaspjalli ritstjóranna.