Verður Landsbankinn skráður í Kauphöllina?

26. maí 2025
VIÐSKIPTI. HLUTHAFASPJALLIÐ. Um nokkurt skeið hafa verið umræður á hlutabréfamarkaðnum hvort ríkið ætti ekki að skrá Landsbankann á markað, þ.e. í Kauphöllina, til að fá verðmiða á bankann - og jafnvel fara norsku leiðina sem væri þá að ríkið seldi hluta af bankanum en væri þar áfram kjölfestufjárfestir.

Þessi umræða hefur ef eitthvað er magnast eftir sölu ríkisins á Íslandsbanka sem seldi bankann í þremur áföngum.

Í nýjasta hlaðvarpsþætti okkar Sigurðar Más Jónssonar, HLUTHAFASPJALLINU, spyrjum við gest okkar Magnús Harðarson, forstjóra Kauphallarinnar um þetta mál. Sjá hér. 

Hann telur að það myndi gera rekstri Landsbankans gott að fá breiðara eignarhald og fleiri að stjórnarborðinu þegar kemur að stjórn bankans. 

Hann segir að þegar ríkið eigi svo stóra eign á samkeppnismarkaði fari betur á því að hún sé skráð á markaði og rökin fyrir því að gera það ekki hafi veikst í seinni tíð, að hans mati.  - JGH