Gerðist Vegagerðin brotleg við lög í Hallsteinsgarði?

26. maí 2025

NÁTTÚRUSPJÖLL.Grafarvogsbúar hafa tekið eftir miklum skemmdum í miðjum Hallsteinsgarði af völdum beltavélar sem þar hefur farið um og skilið eftir sig svöðusár. 


Grafarvogur.net fékk senda mynd af beltavélinni - sem er eins konar beltabor - og á miðri vélinni blasir við merki Vegagerðarinnar. 


Nú er spurningin hvort Vegagerðin hafi brotið lög frá árinu 1998 um akstur utan vega.  Vissulega kaldhæðnislegt þótt sjálfsagt komist Vegagerðin - eða verktakar á hennar vegum - ekki hjá því, eðli málsins samkvæmt, að aka utan vegar við vegagerð.


En hvers konar umgengni og virðing er það við Hallsteinsgarð að æða þar inn með beltavél og valda þar náttúrúspjöllum? Hvaða erindi átti Vegagerðin þarna? 


Það skiptir í sjálfu sér engu máli; það er lágmarkskrafa að laga til eftir sig - ekki síst í ljósi þess að stofnunin kann að hafa brotið lög um akstur utan vega.


Ég skellti mér í Hallsteinsgarð fyrr í dag og tók meðfylgjandi myndir.  - JGH

Merki Vegagerðarinnar er á þessari beltavél sem ætt var með inn í Hallsteinsgarð svo eftir stóðu svöðusár.

Þarna hefur vélinni verið ekið þvers og kruss um listaverkagarðinn.

Braut Vegagerðin lög frá árinu 1998 með því að fara með stórvirka beltavél inn í listaverkagarð í Grafarvogi?

Margt fallegra listaverka er í Hallsteinsgarði - verk sem vekja mikla athygli vegfarenda.

Sextán myndverk eru eftir Hallstein (1945 - 2024) í garðinum.