Fjölniskonur unnu Álftnesinga 3-1 í Grafarvogi í kvöld

23. maí 2025
FJÖLNIR SIGRAÐI. Fjölniskonur unnu sannfærandi sigur á Álftnesingum á Fjölnisvellinum í Grafarvogi í kvöld með þremur mörkum gegn einu: 3-1. Staðan í hálfleik var 2-0. 

Þær Eva Karen Sigurdórsdóttir, María Eir Magnúsdóttir og  Ester Lilja Harðardóttir skoruðu mörk Fjölnis. En Klara Kristín Kjartansdóttir svaraði fyrir gestina.

Á opnunarmyndinni eru Fjölniskonur í hörkusókn en þær voru eins og markatölurnar segja til um mun betri í leiknum. - JGH