Sveit í borg! Ketill gufa notaði ekki þetta farartæki. Eðlilega ekki!

15. júní 2026

Grafarvogur er sveit í borg!


Lagið Ég vil fara upp í sveit, heyrðist oft á öldum ljósvakans á árum áður og Lummurnar hans Gunnars Þórðarsson tóku meira að segja þetta gamla lag sem er erlent en textinn eftir Jón Sigurðsson.


Það er alveg hægt að syngja Ég vil fara upp í Grafarvog því þegar rölt er um Skemmtigarðinn við Gufunes er eins og að hverfa aftur í tímann þar sem gömlu landbúnaðartækin blasa við.


Þótt tækin séu ekki frá landnámsöld þá á Gufunesið sér merka sögu alveg frá því Ísland var numið. Í Gufunesi var kirkja og þar var einnig spítali og sennilega líka kaupstaður.


KETILL GUFA

Gufunes er kennt við Ketil gufu landnámsmann.


Í Þorláksmáldaga sem kenndur var við Þorlák Þórhallsson biskup og gerður var árið 1180 segir að Maríukirkja sé í Gufunesi sem á 20 hundruð í landi og tvær kýr, kross og klukku, silfurkaleik og messuföt, tjöld umhverfis, þrjú altarisklæði, vatnsker, glóðarker og eldbera, slopp og tvær munnlaugar, lás og tvær kertastikur og hefur Maríukirkjan tíund heima og af níu bæjum og gröft.


Prestur í Gufunesi á þeim tíma var Ásgeir Guðmundarsson en hann lést kringum 1180.

Gamall er hann þessi plógur þótt ekki hafi hann verið í eigu Ketils gufu landnámsmanns sem Gufunesið er kennt við.

Sveit í borg. Nyrðri hluti Hamrahverfis blasir við.

Stolt siglir fleyið mitt.

Þetta kallast víst að múa. Ekki líklegt að þessi dráttarvél fái skoðun 27 hjá Frumherja. En tákn um veröld sem var.

Hér erum við komin inn í 21. öldina.

Skemmtigarðurinn í Grafarvogi er stórbrotinn og meiri um sig en ætla mætti við fyrstu sýn.

Fótboltagolf? Allt er nú til.

Klessubolti. Alltaf sér maður eitthvað nýtt!

Og fyrst við vorum að ræða um lagið Ég vil fara upp í sveit sem Lummurnar sungu.


Þá er fyrsta erindið svona:

Ég vil fara upp í sveit,
þar í sumar vil ég vinna,
veit ég þar er margt að finna.
Ég vil reyna eitthvað nýtt

því ég veit að allir elska kaupakonur. - JGH