Fallegur geislasópurinn nýtur sín vel í fullum og blómlegum skrúða þessa dagana
Geislasópurinn er víða í blóma þessa dagana og nýtur sín vel. Hann setur skemmtilegan blæ á garða og gróðurreiti og sannast sagna mætti vera meira af honum á útivistarsvæðum.
Og það fer vel um þennan fallega geislasóp í Grafarvoginum.
Gróðrastöðin Mörk segir þetta um geislasópinn á vef sínum:
„Harðgerður, vind – og saltþolinn. Vex best á sólríkum stað en þolir hálfskugga. Kýs hlýjan og þurran jarðveg. Þolir illa flutning. Blómstrar mikið og blómin ilma Notaður stakstæður og í þyrpingar.“ - JGH
(Fréttin hefur verið uppfærð).The body content of your post goes here. To edit this text, click on it and delete this default text and start typing your own or paste your own from a different source.

Blómlegur er hann.

Geislasópurinn er harðgerður, vind – og saltþolinn. Vex best á sólríkum stað en þolir hálfskugga.

