Það styttist í 17. júní og víða á einkalóðum er búið að snyrta fyrir hátíðina

15. júní 2026

Það styttist í 17. júní og víða hefur sláttuvélarhljóð glumið á einkalóðum að undanförnu þar sem menn hafa verið duglegir að snyrta og slá fyrir þjóðhátíðardaginn. 


Það er auðvitað alltaf mikil stemning í kringum þjóðhátíðardaginn og eftirvænting víða síðustu dagana áður en sjálfur sautjándinn rennur upp.


Þess má geta að skátarnir í Grafarvogi verða með mikla skemmtun eftir hádegi á þjóðarhátíðardaginn við Gufunesbæ.


Vel gert hjá þeim. - JGH