Var á móti því að skylduiðgjald í lífeyrissjóði hækkaði úr 12,0% í 15,5% á sínum tíma

30. desember 2025

ÁRAMÓTASPJALL RITSTJÓRANNA. Gunnar Baldvinsson, forstjóri Almenna lífeyrissjóðsins, segir í Áramótaspjalli okkar Sigurðar Más að vissulega séu lífeyrissjóðirnir stórir í Kauphöllinni – eiga nálægt 40% hlut í heildina í skráðum fyrirtækjum - en þrátt fyrir það séu þeir ekki of fyrirferðamiklir, að hans mati.


Sparnaður fólks í gegnum lífeyrissjóðina er núna orðinn 19,5% af launum með viðbótarlífeyrissparnaðinum.


Hann segist hafa vissar áhyggjur af talsverði einsleitni innlendra eigna lífeyrissjóðanna og því hafi Almenni lagt meiri áherslu á erlendar fjárfestingar þar sem hægt sé að hreyfa sig á markaðnum án þess að það hafi áhrif á verðið.


Gunnar segist ennfremur hafa verið eini einstaklingurinn sem skrifaði gegn því að skylduiðgjald í lífeyrissjóði yrði hækkað á sínum tíma úr 12,0% í 15,5% því þar með yrði meginsparnaður flestra orðin skyldusparnaður í gegnum lífeyrissjóðina og veikti með því annan sparnað einstaklinga. 


Sjá allt viðtalið við Gunnar hér í meðfylgjandi klippu. - JGH

Gunnar Baldvinsson, forstjóri Almenna lífeyrissjóðsins.