Alvotech betri kostur núna en fyrir þremur árum - einsaklingum haldið frá beinni aðild að markaði skuldabréfa
ÁRAMÓTASPJALL RITSTJÓRANNA. Snorri Jakobsson, eigandi Jakobsson Capital, segir í Áramótaspjalli okkar Sigurðar Más að Alvotech sé núna betri fjárfestingarkostur en fyrir þremur árum þar sem það sé lengra á veg komið og tekjumódelið liggi betur fyrir.
Mikil lækkun á gengi bréfa í Alvotech gefi sömuleiðis viss kauptækifæri.
Hann segir að eftir nýlegan vaxtadóm hjá bönkunum muni þrýstingur á skuldabréfaútgáfu bankanna aukast verulega. Hann segir ennfremur að útgefin skuldabréf fyrirtækja séu vænn kostur fyrir einstaklinga en því miður sé sá makaður meira og minna lokaður fyrir almenning nema í gegnum sjóði. Í raun sé verið að halda almenningi frá góðum fjárfestingarkosti.
Hann heldur því sömuleiðis fram að um 60% af íslenska hagkerfinu sé fjármagnað með skammtímalánum, þ.e. langtímaeignir séu fjármagnaðar með skammtíma lánum sem sé engan veginn viðunandi og skapi ákveðnar hættur.
Sjá má allt viðtalið við Snorra í meðfylgjandi klippu.
- JGH
Snorri Jakobsson, eigandi Jakobsson Capital.


