Viðhald á gangstéttum í úthverfum ábótavant en Hlemmur að nálgast þrjá milljarða

9. júlí 2026

Það kom fram hjá Dóru Björt Guðjónsdóttur, þáverandi borgarfulltrúa, í samtali við RÚV fyrir um ári að kostnaður við framkvæmdirnar við Hlemm væru þá komnar í um tvo milljarða króna.


Þannig háttar til að Grafarvogur.net fer annað slagið úr hverfi 112 niður í 101 og hefur fylgst með „hinum endalausu“ framkvæmdum við Hlemm.


Það verður að segjast eins og er að þær virðast engan enda ætla að taka og ætla má miðað við umfang þeirra að kostnaðurinn sé að nálgast þrjá milljarða króna og verði á þeim nótum þegar upp verði staðið.


Ágætt er að hafa miklar og stöðugar framkvæmdir í hverfi 101 í huga þegar rætt er um að viðhaldi á gangstéttum í úthverfum borgarinnar, eins og í Grafarvogi, Breiðholti og Árbænum, sé ábótavant.


Þegar slysið varð í Langarima á dögunum - þar sem 93 ára kona slasaðist þegar henni var ekið í hjólastól og kastaðist í stéttina þegar hjólastóllinn lenti á misfellu í ójafnri stéttinni - urðu miklar umræður á meðal íbúa um að víða væri pottur brotinn þegar kæmi að viðhaldi gangstétta í úthverfum.


Það er þörf umræða þótt núverandi borgarstjóri, Hildur Björnsdóttir, hafi brugðist skjótt við og látið laga gangstéttina við Langarima á um 500 metra kafla þar sem slysið var og stéttin þar sé núna sléttstraujuð og fín.


Þær soga fé til sín stóru framkvæmdirnar, eins og við Hlemm. - JGH

Þær virðast taka endalausan tíma framkvæmdirnar við Hlemm.

Steypuframkvæmdir við gangstéttina í Langarima á dögunum. Vandað til verka og vel gert.

Sléttstraujað og fínt við Langarima.

Það virðist vera sagan endalausa þegar kemur að framkvæmdum við Hlemm.