Dró regnbogann að húni eftir atburði næturinnar við kirkjuna

8. júlí 2026

Ólafur Sverrisson, verkfræðingur og fánaáhugamaður með meiru í Hamrahverfinu í Grafarvogi, dró regnbogafánann að húni í morgun eftir skemmdarverk næturinnar við Grafarvogskirkju. 


En málað var yfir regnbogafánann í kirkjutröppunum með íslensku fánalitunum.


Þessi atburður við kirkjuna hefur vakið sterk viðbrögð og hafa allir helstu fjölmiðlar landsins fjallað um það.


Fréttin hefur sömuleiðis verið á leifturflugi á samfélagsmiðlum í allan dag - þar sem sitt sýnist hverjum um þetta athæfi.


Ólafur Sverrisson í Grafarvogi á stærsta fánasafn á Íslandi í eigu einstaklings og flaggar nánast alla daga ársins þegar veður leyfir.


Að undanförnu hefur hann verið sérlega duglegur við að flagga fánum þeirra þjóða sem keppa á HM í fótbolta. - JGH

Ólafur dró regnbogafánann að húni í mogun eftir atburði næturinnar við kirkjuna.