Hákon Örn og Þóra Sigríður meistarar hjá GR. Troðfullt á glæsilegu lokahófi á Korpunni

13. júlí 2026

Hákon Örn Magnússon og Þóra Sigríður Sveinsdóttir urðu klúbbmeistarar hjá Golfklúbbi Reykjavíkur að þessu sinni en mótið kláraðist sl. laugardag og lauk með glæsilegu lokahófi í sal félagsins á Korpúlfsstöðum.


Þetta var annar klúbbmeistaratitill Hákons Arnar en Þóra Sigríður var að fagna sínum fyrsta sigri.


Þóra Sigríður Sveinsdóttir var í og með forystuna í gegnum allt mótið og lauk leik á 299 höggum eða 11 höggum yfir pari.


Í frétt á FB-síðu GR segir um sigur Hákonar:


„Hákon Örn Magnússon var einnig í og með forystuna í gegnum nánast allt mótið og lauk leik á 279 höggum eða 5 höggum undir pari. Fyrir lokahringinn var Hákon Örn með 7 högga forystu sem Böðvar Bragi náði að minnka smátt og smátt á síðasta hring.


Þegar ein hola var eftir og eitt högg skildi þá félaga að var spennan í hámarki. Leikar enduðu þó þannig að Böðvar Bragi fékk skolla og Hákon Örn par. Böðvar Bragi varð því annar á 281 höggi eða 3 höggum undir pari.“

Þóra Sigríður Sveinsdóttir og Hákon Örn Magnússon klúbbmeistara hjá GR en meistaramót félagsins lauk síðdegis á laugardag.

Fullt hús var á lokahófinu sem haldið var í sal félagsins á Korpúlfsstöðum þar sem Jóhann Alfreð Kristinsson var veislustjóri og stýrði veislunni af sinni alkunnu snilld.


Að verðlaunaafhendingu lokinni tók Dj Tutti Frutti við og sá um að halda gleðinni og stemmningunni fram eftir kvöldi.

Sigurvegarar í öllum flokkum á Korpúlfsstöðum sl. laugardagskvöld.

HELSTU ÚRSLIT Í FJÖGURRA DAGA KEPPNI Í MÓTINU URÐU ANNARS ÞESSI:

(Ath. að í eldri flokkum var þriggja daga keppni og segir á síðu GR að þau úrslit megi finna finna í mótaskrá á Golfbox.)


Meistaraflokkur karla

  1. Hákon Örn Magnússon, 279 högg
  2. Böðvar Bragi Pálsson, 281 högg
  3. Elvar Már Kristinsson, 287 högg


Meistaraflokkur kvenna

  1. Þóra Sigríður Sveinsdóttir, 299 högg
  2. Ásdís Valtýsdóttir, 305 högg
  3. Margrét Jóna Eysteinsdóttir, 309 högg


1.flokkur karla

  1. Stefán Óli Magnússon, 304 högg
  2. Pétur Steinn Þorsteinsson, 306 högg
  3. Thomas Ari Arnarsson, 307 högg


1.flokkur kvenna

  1. Jenný María Jónsdóttir, 331 högg
  2. Helga Friðriksdóttir, 336 högg
  3. Sara Ágústa Sigurbjörnsdóttir, 337 högg


2.flokkur karla

  1. Hreimur Guðlaugsson, 333 högg
  2. Pétur Kristinsson, 334 högg - vann bráðabana
  3. Brynjar Guðjónsson, 334 högg


2.flokkur kvenna

  1. Svenný Sif Rúnarsdóttir, 373 högg
  2. Kristi Jo Jóhannsdóttir, 377 högg
  3. Berglind Jónsdóttir, 378 högg


50-64 ára karlar fgj.0-10,4

  1. Frans Páll Sigurðsson, 291 högg
  2. Jón Karlsson, 297 högg
  3. Haraldur Þórðarson, 299 högg - vann í bráðabana


50-64 ára konur fgj,0-16,4

  1. Sigríður Kristinsdóttir, 330 högg
  2. Júlíana Guðmundsdóttir, 341 högg
  3. Ásta Óskarsdóttir, 343 högg


Þrír kylfingar slóu draumahöggið í mótinu og einn kylfingur sló ennþá sjaldgjæfara draumahögg; albatross.


Albatross í golfi merkir að fara þrjá undir pari og gerist yfirleitt á par 5 holum.


Ingimar Jónasson - hola í höggi á 6. braut á Sjónum

Hjalti Ævarsson - hola í höggi á 3. braut á Sjónum

Páll Dagbjartsson - hola í höggi á 3. braut á Sjónum


Jóhann Frank Halldórsson - albatross á 11. braut á Ánni. (Fór á 2 höggum á par 5 braut.)


Grafarvogur.net óskar öllum kylfingum sem tóku þátt í mótinu til hamingju og auðvitað ekki síst þeim sem sigruðu í sínum flokkum. 


Og þess má geta að allar myndir hér eru fengnar hjá GR. - JGH

Hákon Örn Magnússon, klúbbmeistari karla í GR, þakkar fyrir sig með ræðu og hafði að sjálfsgöðu ástæðu til að brosa og gleðjast.

Þóra Sigríður Sveinsdóttir, klúbbmeistari kvenna í GR, að sjálfsögðu glöð í sinni þegar hún þakkaði fyrir sig.

Frá lokahófi og verðlaunaafhendingu í barna- og unglingaflokkum en það var haldið fyrr í vikunni á Korpunni. Mjög öflugt unglingastarf er hjá GR. (Allar myndir hér fengnar hjá GR.)