Vagandi göngulag - kvöldrúntur hjá þessari fjölskyldu á Ártúnshöfða. Ekkert liggur á!

25. ágúst 2026

Þær létu sér fátt um finnast um umferðarniðinn á gatnamótum Breiðhöfða og Stórhöfða á Ártúnshöfða í kvöld.


Pollrólegar gengu þær yfir Breiðhöfðann í átt að nýbyggingunum þótt nokkur umferð væri um Stórhöfðann.


Alveg sama.


Hvað liggur eiginlega á?


Þetta er okkar kvöldganga og enginn skjátími eins og hjá mannfólkinu á kvöldin.


Við höfum okkar vagandi göngulag.


Með einu gé-i.


Vagga og velta - það er rokk og ról.


Gæsagangurinn er hægari og það eru minni læti.


Er ekki allt í lagi að vaga svolítið í göngulaginu? 


Þetta er nú einu sinni kvöldganga og allir slakir - ekki satt? - JGH

Umferðarniður? Hvað er nú það? Við eigum réttinn þótt þetta sé ekki merkt gangbraut.

Allt í röð og reglu hjá fjölskyldunni. Við höldum okkar striki yfir í nýbyggingarhverfið á Höfðanum.

Gæsagangur og vagandi göngulag. Sko, við erum komnar yfir með okkar lagi; göngulagi.

Fjöllan í kvöldgöngu og kemst þó hægt fari. Engan æsing.