Pikkoló verður við Olís í Grafarvoginum. Skúrinn kominn og máltíðir innan skamms

25. ágúst 2026

Hvaða brúni skúr er þetta eiginlega sem búið er að koma fyrir við Olís við Gullinbrú í Grafarvoginum?


Jú, hann er hluti af nýju matarmenningunni. Þetta er Pikkoló-stöð! Kæld afhendingarstöð fyrir matvörur.


Pikkolo.is er vefsíða og þjónusta sem hjálpar fólki að nálgast ferskar mat- og dagvörur í nærumhverfi sínu á einfaldan og umhverfisvænan hátt.


Þar segir: „Þú einfaldlega verslar þínar uppáhalds ferskvörur á netinu - Velur þína næstu Pikkoló-stöð sem afhendingarstað og við sjáum um restina!“ 


Núna rekur Pikkoló 5 kældar afhendingastöðvar á höfuðborgarsvæðinu en fleiri eru að bætast við, eins og þessi við Olís við Gullinbrú.


Fyrir okkur gamlingjana er þetta nýjung.


Ég las þetta raunar fyrst sem pikkaló sem merkir vikapiltur á hótelum.


Þeir voru vinsælir á hótelum hér á landi í den. Sáum um töskunar og ýmsa snúninga.


Núna sér maður þá aðallega á hótelum erlendis - eða bara í bíómyndum. - JGH

Pikkoló-stöðin við Olís við Gullinbrú opnar fljótlega. Þetta eru kældar afhendingarstjöðvar fyrir mat.

Reisuleg bygging við Olís-stöðina við Gullinbrú.