Spöngin verður heitur reitur en Reitir segja könnun sýna mikinn velvilja Grafarvogsbúa
Miðað við viðbrögð Grafarvogsbúa á samfélagsmiðlum í gær við fréttum um hugmyndir Reita um mikla uppbyggingu í Spönginni stefnir í að Spöngin verði heitur reitur hjá Reitum og Grafarvogsbúum á næstunni. Skoðanir virðast mjög skiptar. Margir lýstu ánægju sinni með tillögurnar en aðir voru mjög á móti þeim.
Kynnt var könnun Reita í Morgunblaðinu í gær sem sýndi velvilja Grafarvogsbúa við mikla uppbyggingu í Spönginni en Reitir íhuga að byggja þar fjölda íbúða þótt í Morgunblaðinu í gær segði að endanlegur fjöldi þeirra lægi ekki fyrir.
Sjá mátti vangaveltur um þessa könnun á samfélagsmiðlum í gær og höfðu einhverjir á orði að fróðlegt væri að vita hvernig úrtakið hefði verið valið; þ.e. hverjir hefðu verið spurðir.

Nokkurra hæða fjölbýlishús munu rísa þar á þessu þekkta bílaplani Bónuss sunnan við Spöngina, skv. hugmyndum Reita.
Í umræddri könnun sem Reitir létu framkvæma meðal íbúa Grafarvogs um framtíð Spangarinnar kom fram að 53% íbúa 60 ára og eldri í Grafarvogi sjái fram á að vilja selja stærra húsnæði til að flytja í minni íbúð innan Grafarvogs.
„Um 73% fólks yfir sextugu kváðust fylgjandi því að í Spönginni yrðu byggðar íbúðir fyrir eldra fólk. Meirihluti yngra fólks var einnig jákvæður fyrir slíkri uppbyggingu,“ sagði í Morgunblaðinu.
Og ennfremur: „Grafarvogsbúar eru stoltir af sínu hverfi og 81% íbúa stefna að því að búa þar á efri árum, samkvæmt könnuninni. Þá kom jafnframt fram að mikill meirihluti telur miklu máli skipta að bæta almenningsrými í Spönginni, svo sem að bæta við útisvæði fyrir veitingastaði eða kaffihús, setrými og bekki, græn svæði og garða.
Ríflega 66% íbúa töldu það jákvætt ef byggt væri við Spöngina svo þar væri hægt að koma fyrir fleiri verslunum og meiri þjónustu,“ segir í könnun Reita.

Bílaplanið við Bónus hverfur. Fjölbýlishúsin fremst á myndinni eru þar sem bílaplanið við Bónus sunnan Spangarinnar er núna, skv. þessum tillögum og teikningum sem var að finna á heimasíðu Reita og bárust í tal á íbúafundinum í febrúar sl.
Á íbúafundinum í febrúar kom fram að samkvæmt hugmyndum Reita sem væri að finna á heimasíðu þeirra væri gert ráð fyrir að byggðar verði 140-170 íbúðir í 2-5 hæða blokkum á svæðinu - og að félagið stefndi að því að nýtt byggingarmagn verði 17.200 fermetrar, þar af 12.500 fermetrar af íbúðarrými. - JGH
Heitur reitur. Spöngin stefnir í að verða heitur reitur Reita á næstunni.


