Íbúar við Vættaborgir óttast að missa sólarljósið og lenda í skugga við hærri Spöng
Íbúar við Vættaborgir óttast að missa sólargeislana og lenda í skugga verði af byltingarkenndum hugmyndum Reita um stækkun á Spönginni með háum byggingum.
Þetta kom glöggt fram á íbúafundinum með Heiðu Björg Hilmisdóttur, fráfarandi borgarstjóra, á íbúafundi á Bókasafni Grafarvogs hinn 10. febrúar sl. og Grafarvogur.net flutti ítarlegar fréttir af.
Þetta mátti líka lesa í ýmsum athugasemdum í gær við fréttum okkar af tillögu Reita að nýju deiliskipulagi sem unnin var í samstarfi við dönsku arkitektastofuna Henning Larsen og Morgunblaðið sagði fyrst frá og ítarlega í gærdag.
Stóra spurningin fyrir íbúana er sú hversu mikið verslanir Hagkaups og Bónus (sem verða hlið við hlið) muni hækka eftir uppbygginguna og hvort þeir þurfi eitthvað að óttast skuggamyndun. Við fyrstu sýn virðast tillögurnar ekki gera ráð fyrir mikill hækkun Spangarinnar norðan megin.
Fjallað var um tillöguna á fundi umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkurborgar á dögunum og samkvæmt Morgunblaðinu var vel tekið í hana af núverandi meirihluta og þess fyrrverandi. Samhljómur þar!
Það fer hins vegar ekki á milli mála að íbúarnir við Vættarborgir óttast að missa sunnansólina eftir breytingarnar. Þetta mun allt skýrast betur þegar tillögurnar verða kynntar á næstu vikum.

Móavegur liggur á milli Spangarinnar og raðhúsanna í Vættaborgum sem standa næst verslunarmiðstöðinni en grindverkið hægra megin á myndinni eru lóðamörk raðhúsanna.
Móavegur liggur á bak við Spöngina norðan megin og af honum er aðgengi fyrir starfsfólk og vöruflutninga í verslanirnar í Spönginni.
Meðfram veginum er áberandi samfelld girðing sem er lóðarmörk raðhúsanna við Vættaborgir. Þetta eru húsin nr. 2, 4, 6 og 8 við Vættaborgir. - JGH

Garðarnir við Vættaborgir snúa í suður og njóta sunnansólar yfir daginn. Íbúarnir óttast að verða skuggamegin en ekki sólarmegin rísi hávaxnar byggingar í Spönginni.

Vættaborgir 2, 4, 6 og 8.

Vættaborgir eru norðan megin við Spöngina.

Morgunblaðið greindi í gær frá könnun Reits þar sem fram kemur að Grafarvogsbúar taki vel í hugmyndir Reita um að mikla uppbyggingu í Spönginni.

Hér eru hugmyndir Reita um Spöngina eins og þær voru kynntar á íbúafundinum sl. febrúar. Stóra spurningin er sú hversu háar byggingar Hagkaups og Bónus verða eftir uppbygginguna og hvort íbúar í Vættaborgum þurfi eitthvað að óttast skuggamyndun.

Þetta eru veruleg uppbygging með nýju verslunarrými og fjölda nýrra íbúða í Spönginni - ef af verður - og bylting frá því sem nú er. Takið eftir fjölbýlishúsunum norðan Borgarholtsskóla.

