Hátt í hundrað krakkar tóku þátt í skákmóti Fjölnis og allir heim með verðlaun

29. maí 2026

„Ótrúlegt en satt og ábyggilega einstakt: Verðaunin voru svo mörg, stór og smá, að allir þátttakendur fóru heim með verðlaun. Hagkaup, Domino´s, Boltamaðurinn og Bókabúð Grafarvogs gáfu öll verðlaunin,“ segir Helgi Árnason, formaður skákdeildar Fjölnis, um Sumarskákmót Fölnis sem haldið var í Rimaskóla í gær.


Hátt í hundrað krakkar tóku þátt í mótinu og eins og Helgi segir þá fóru allir heim með verðlaun. Vel gert og ekkert nema frábært að fylgjast með hinum mikla skákáhuga barna og unglinga hér í Grafarvogi.

Skákgyðjan heillar. Smekkfullur salur af áhugasömum krökkum við hvítu reitina og þá svörtu.

Helgi segir í FB -færslu að mikil hátíðarstemning hafi verið í skáksalnum og allt hafi iðað af lífi og fjöri.


„Stórmeistarinn og varaborgarfulltrúinn Helgi Áss Grétarsson tefldi klukkustundar fjöltefli í upphafi skákhátíðarinnnar. Garðar Jónsson frá Rótarý í Grafarvogi afhenti verðlaunagripi sem klúbburinn hefur gefið öll rúm 20 árin af miklum rausnarskap og kærleika.“


Heiðursgestur Sumarskákmótsins var forseti Skáksambands Íslands, Jóhanna Björg Jóhannsdóttir.


Jóhanna Björg hefur alltaf sýnt barnastarfinu mikinn áhuga og lagt áherslu á þátttöku stúlkna. Það gladdi hana mjög að sjá svona margar stelpur við taflborðið,“ segir Helgi sem jafnframt var mótsstjóri.

 

Meðfylgjandi ljósmyndir tók Tómas Tandri Jóhannsson.


Skák og mát. Áfram Fjölnir og allir ungu skáksnillingarnir!  - JGH

Hann er magnaður áhuginn hér í Grafarvogi á skákinni.

Sigurvegarar. Frá vinstri; Helgi Fannar Óðinsson í yngri flokk, Katrín Ósk Tómasdóttir í stúlknaflokki og Anh Hai Tran í eldri flokki, sigurvegari mótsins, og Helgi Árnason, formaður Skákdeildar Fjölnis.

Stórmeistarinn Helgi Áss Grétarsson tefldi klukkustundar fjöltefli í upphafi skákhátíðarinnnar.

Heiðursgestur Sumarskákmótsins var forseti Skáksambands Íslands, Jóhanna Björg Jóhannsdóttir.